fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Réttarmeinafræðingur telur útilokað að miltað hafi rofnað við endurlífgun

Annþór og Börkur með sólgeraugu inni í réttarsal – tekist á um dánarorsök Sigurðar Hólm sem lést í klefa sínum árið 2012

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. janúar 2016 12:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýskur réttarmeinafræðingur sagði fyrir rétti í Héraðsdómi Suðurlands í dag, að andlát Sigurðar Hólms Sigurðssonar, hafi ekki komið til vegna lífgunartilrauna.

Annar dagur hófst í dag í réttarhöldunum yfir þeim Annþór Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni, sem er gefið að sök að hafa orðið samfanga sínum, Sigurði Hólm Sigurðssonar, að bana í klefa hans á Litla-Hrauni árið 2012.

Annþór og Börkur voru báðir viðstaddir annan daginn í réttarhöldunum sem er varið að mestu í því að deila um það hvort Sigurður hafi látist af mannavöldum. Helsta vörn Barkar og Annþórs er sú að Sigurður hafi verið í lélegu líkamlegu ástandi, hann hafi fallið, og látist.

Dánarmein hans var rifið milta, áverki sem réttarmeinafræðingur segir að komi ekki til nema vegna höggs af eða öðrum utanaðkomandi aðstæðum.

Meðal annars fundust 2 lítrar af blóði í kviðarholi Sigurðar, sem réttarmeinafræðingurinn vill einmitt meina að sanni að hann hafi ekki hlotið rof á milta við lífgunartilraunir, sem stóðu í 40 mínútur að sögn verjanda Barkar.

Verjandi Barkar fékk yfirmat á skýrslu þýska réttarmeinafræðingsins, sem heitir Regína Preuss, en þar var sérstaklega gagnrýnt að húð á höfði og fótum hefði ekki verið rannsökuð. Regína sagði ekkert benda til þess að þar væri að finna áverka sem eftir væri leitað.

Athygli vakti að bæði Annþór og Börkur voru með sólgleraugu inni í réttarsalnum fyrsta klukkutímann. Báðir voru þeir klæddir í hettupeysur, en Börkur var með hettuna yfir höfði sínu allan tímann á meðan Annþór fékk sér extra-tyggjó á milli vitnisburða.

Hæstiréttur Íslands staðfesti þungar fangelsisrefsingar yfir Annþóri og Berki árið 2013.

Annþór hlaut þyngstu refsinguna, eða sjö ár, á meðan Börkur fékk sex ár.

Voru þeir sakfelldir fyrir að hafa í félagi við aðra veist að manni og þremur öðrum með margvíslegu ofbeldi á heimili mannsins.

Annþór og Börkur voru að auki sakfelldir fyrir að hafa í annað sinn farið inn í íbúð, barið þar mann í höfuðið með trébarefli, skipað öðrum að leggjast á gólfið og þvingað þann þriðja til að kasta þvagi yfir hann.

Annþór og Börkur reyndu síðan að kúga hálfa milljón króna úr þeim sem var barinn í hnakkann og hótuðu honum frekara ofbeldi yrði hann ekki við því.

Annþór og Börkur voru hins vegar sýknaðir af ákæru um frelsissviptingu á mönnunum þremur.
Annþór var sakfelldur fyrir líkamsárásir með því að hafa á tiltekinni sólbaðsstofu slegið mann oftar en einu sinni í andlitið, tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og slegið annan mann í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar og nokkra bólgu í kringum hægra auga og yfirborðslæg sár á bæði eyru.

Þá var hann einnig sakfelldur fyrir tilraun til fjárkúgunar á mönnunum sem hann réðst á, en hann krafði þá um hálfa milljón einnig.

Ekki taldist þó sannað að Annþór hefði svipt mennina frelsi við handrukkunina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova