„Það er mikill misskilningur ef yfirmenn hjá ríkisstofnunum telja að hlutverk fjölmiðla sé að endurvarpa aðeins opinberum yfirlýsingum ríkisstofnananna eða taka aðeins við og birta þær upplýsingar sem stofnunum hentar að komi fyrir sjónir almennings. Slík sjónarmið ríkja víða í veröldinni en ekki á Vesturlöndum og eiga ekki að líðast,“ segir í leiðara Morgunblaðsins í dag.
Þar er farið hörðum orðum um tölvupóst deildarstjóra samskiptadeildar Landspítalans til stjórnenda spítalans, en pósturinn hefur verið mikið í fréttum eftir að Vísir.is greindi frá málinu síðdegis í gær. Í póstinum er því beint að stjórnendum að svara ekki símtölum frá fjölmiðlamönnum, þau ættu að fara í gegnum samskiptadeildina, og kallaði hann blaðamenn skrattakolla: „…þessir skrattakollar hringja 24/7.“
Deildarstjórinn, Stefán Hrafn Hagalín, ræddi við DV um málið í gærkvöld. Sagði hann að tilmælin fælu engan veginn í sér ritskoðun heldur væri þeim ætlað að hlífa þreyttum starfsmönnum við óþarfa fyrirspurnum sem hægt væri að svara í samskiptadeildinni, auk þess að stuðla að því að yfirsýn fengist yfir fyrirspurnir og blaðamönnum væri þannig betur tryggður aðgangur að upplýsingum:
„Auðvitað vilja blaðmenn fá upplýsingar beint frá kúnni um eitthvað sem er hitamál eða þykir spennandi hverju sinni. Fólk er að vakna eða að koma af vaktinni eða úr klíník og er kannski með 10 ósvöruð símtöl frá fjölmiðlum og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Ég segi starfsfólkinu bara að beina þessu að samskiptadeildinni. Að þau geti hvenær sem er beint öllum fyrirspurnum til samskiptadeildar, sem síðan sér til þess að öllu sé svarað um leið og færi gefst. Þetta er margra ára gamalt fyrirkomulag. En þetta snýst auðvitað á engan hátt um að ritskoða hver segir hvað við hvern eða neitt, að múlbinda sérfræðinga eða eitthvað slíkt. Við leggjum þvert á móti mikið upp úr því að alltaf séu okkar bestu sérfræðingar í samskiptum við fjölmiðla og almenning.“
Í leiðara Morgunblaðsins segir að nú sé afar brýnt að upplýsingagjöf varðandi kórónuveirufaraldurinn sé góð. Í framhaldi af því segir:
„Við þessar aðstæður gerist það þó að deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans sendir stjórnendum spítalans tölvupóst og gefur þeim fyrirmæli um að svara ekki fjölmiðlum. Stjórnendunum er sagt að „þessir skrattakollar“, eins og fjölmiðlarnir eru nefndir, hringi á öllum tímum sólarhrings, en til að stjórnendurnir svari ekki óvart þá er gefið upp á hvaða tölustöfum símanúmer miðlanna byrja.“
Segir að pósturinn sé mikið áhyggjuefni vegna þess hugarfars sem hann lýsi:
„Þessi tölvupóstur samskiptastjórans er með miklum ólíkindum og hlýtur að hafa einhverjar afleiðingar. Ekki síst vegna þess að þetta lýsir einhverju hugarfari sem er verulegt áhyggjuefni fyrir almenning.“
Morgunblaðið bendir á að fjölmiðlar hafi meðal annars það hlutverk að spyrja óþægilegra spurninga sem upplýsingafulltrúar og stjórnendur hafi ekki endilega áhuga á að svara. „Þetta á enn frekar við þegar fjölmiðlar og almenningur fá á tilfinninguna, og hafa séð þess merki, að markvisst sé verið að reyna að stýra umræðunni,“ segir enn fremur.