„Meirihlutinn í Reykjavík gefur ekki mikið fyrir minnihlutann. Tillögur minnihlutans eru yfirleitt afgreiddar með hraði og vísað frá.“
Svona hefst ritstjórnargrein Morgunblaðsins í blaði dagsins en eins og kunnt er er Davið Oddsson ritstjóri blaðsins og því líklegt að hann hafi haldið á pennanum við skrifin. „Þannig fór fyrir tillögu Sjálfstæðisflokksins um að umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar yrði falið að hefja skipulagningu atvinnulóða í landi Keldna,“ segir í greininni.
Þá er vísað í orð Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna í borginni. „Hún fékk skjótan dauðdaga,“ sagði Eyþór í samtali við Morgunblaðið í gær en samkvæmt greininni var hann ekki kátur. „Með þessu hefði glatast „stærsta tækifærið til að koma í veg fyrir flótta fyrirtækja úr borginni, og sömuleiðis að tryggja meira jafnvægi þannig að umferðin sé ekki öll í eina átt á háannatímum“,“ segir svo í umræddri ritstjórnargrein.
Þá segir í greininni að erfitt sé að raða málunum sem tekist er á um í borginni inn á pólitískt litróf. „Meginregla sitjandi meirihluta virðist vera sú að prófsteinn hugmyndanna sé ekki ágæti þeirra eða verðleikar, heldur hvaðan þær koma,“ segir í greininni.
„Tillagan um Keldnalandið er gott dæmi um þetta. Komi hugmyndir frá minnihlutanum hljóta þær „skjótan dauðdaga“. Í því ljósi er afleitt að hugmyndin að borgarlínunni, sem ef af verður hefur alla burði til að verða einhver mesta peningahít í sögu borgarinnar, skyldi ekki koma frá minnihlutanum í borgarstjórn.“