fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Það verður að vera kombucha – líka í sveitinni

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 22. janúar 2021 11:17

Berglind segir kombucha frá Kombucha Iceland vera fullkomna viðbót við mataræði og lífsstíl fjölskyldunnar, enda er drykkurinn gríðarlega hollur og góður fyrir meltinguna. MYND/ERNIR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svaladrykkurinn kombucha frá Kombucha Iceland hefur heillað fólk úr ýmsum kimum þjóðfélagsins og fyrrverandi verk- efnastjóri Landbúnaðarklasans, kúabóndinn og frumkvöðla- „grúppían“ Berglind Hilmarsdóttir er þar engin undantekning.

Berglind Hilmarsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík og flutti í sveitina fyrir 30 árum. „Ég starfa nú sem bóndi á Núpi undir Eyjafjöllum með 250 nautgripi, þar af 65 mjólkurkýr, ásamt eiginmanni, syni og tengdadóttur. Við erum einnig með sauðfé og hross og mikið af fallegri náttúru sem ég nota til útivistar,“ segir Berglind. Hún segist lifa mjög heilsusamlegu lífi á Núpi og að þau fjölskyldan rækti og framleiði mikið af þeim matvælum sem þau neyti dagsdaglega. Þá segist hún algerlega húkkt á kombucha frá Kombucha Iceland. „Kombucha frá Kombucha Iceland er fullkomin viðbót við okkar mataræði og lífsstíl. Mér líður vel af því að drekka Kombucha Iceland “

Ást við fyrsta sopa

Berglind kynntist svaladrykknum fyrst fyrir fjórum árum þegar hún starfaði sem verkefnastjóri Landbúnaðarklasans. Landbúnaðarklasinn var stofnaður í Bændasamtökum Íslands árið 2014 og er nú klasi rúmlega 30 fyrirtækja og stofnana sem fjármagna starfið. „Sjálf var ég fram til ársins 2019. Klasinn hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í frumkvöðlastarfi á sviði framleiðslu á landbúnaðarafurðum. Þá hefur hann staðið fyrir og tekið þátt í fjölda ráðstefna og stuðningi við frumkvöðlastarf, meðal annars með þátttöku í viðskiptahraðlinum „Til sjávar og sveita“, sem er stjórnað af Icelandic Startups í samvinnu við Sjávarklasann, Matarauð Íslands og fleiri fyrirtæki.“ Eitt af þeim frumkvöðlafyrirtækjum sem hafa notið góðs af stuðningi Landbúnaðarklasans er Kombucha Iceland með þeim Rögnu Björku Guðbrandsdóttur og Manuel Plasencia Gutiérrez í fararbroddi.

Mörg þúsund ára saga

Þegar Berglind tók fyrsta sopann af kombucha árið 2017 hreifst hún samstundis af drykknum. „Ég kynntist kombucha og þeim Rögnu og Manuel sem reka Kombucha Iceland í ársbyrjun 2017, eftir sameiginlega kynningu Landbúnaðarklasans og Sjávarklasans. Þá var fyrirhugað að veita stuðning við frumkvöðla með því til dæmis að bjóða þeim aðstöðu í frumkvöðlasetrinu í húsi Sjávarklasans á Granda. Manuel mætti brosandi út að eyrum með fyrstu prufurnar af kombucha og leyfði okkur að smakka og fylgjast með þróuninni í kjölfarið. Þessi svalandi drykkur vakti strax áhuga, enda var þetta spennandi því við höfðum aldrei bragðað neitt þessu líkt. Því varð úr að Manuel og Ragna þáðu aðsetur í Sjávarklasanum. Kombucha er gífurlega lifandi, braðgmikill og hressandi drykkur sem á sér þar fyrir utan mörg þúsund ára sögu. Svo er þetta einfaldlega bragðgott, svalandi og hollt.“

Þrátt fyrir að Berglind starfi ekki lengur sem verkefnastjóri Landbúnaðarklasans, þá er langt frá því að hún hafi sagt skilið við frumkvöðlasenuna. „Eftir að ég hætti sem verkefnastjóri klasans hef helgað mér pláss í frumkvöðlasenunni sem grúppía og aðdáandi okkar frábæru frumkvöðla á öllum sviðum. Þá gerðist ég aðili að Samtökum smáframleiðenda matvæla (SSFM) til að missa ekki af lestinni.“

Alger sælustund

Berglind segist ekki eiga kost á því að nálgast kombucha að staðaldri og birgir sig því upp þegar hún á leið í bæinn. „Ég bý langt frá höfuðborgarsvæðinu og næsta verslun við okkur sem selur kombucha frá Kombucha Iceland er Krónan á Selfossi, sem er um klukkustundar akstur frá okkur. Í bæjarferðum geri mér alltaf ferð í þær verslanir sem ég veit að selja kombucha og kaupi mér þá góðar birgðir og margar tegundir til að eiga á Núpi þangað til ég á aftur leið á höfuðborgarsvæðið. Eftir langar og strangar borgarferðir þá klikkar ekki að svolgra í sig einni flösku af krækiberja- eða jarðarberjakombucha á leiðinni heim í sveitina. Það er alger sælustund! Þá sleppi ég líka við að detta í nammi eða aðra óhollustu sem er innan seilingar þegar mann vantar orku.

Berglindi finnst gott að byrja daginn á einu glasi af engiferdrykknum og ljúka honum síðan með glóaldindrykknum.Hún hefur líka prófað að nota glóaldin kombucha í matargerð sem kemur afar skemmtilega á óvart. MYNDIR/DANI GUINDO.

Þegar ég á kombucha heima þá drekk ég hálfa til eina flösku á dag, en ég kaupi alltaf stóru flöskurnar frá Kombucha Iceland og er með nokkrar bragðtegundir í gangi hverju sinni. Þá er líka gott að byrja daginn á einu glasi af engiferdrykknum og ljúka honum síðan með glóaldindrykknum.   Ég hef líka prófað að nota glóaldin kombucha í matargerð og það kemur afar skemmtilega á óvart.“

Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í Kombucha Iceland-fjölskyldunni

Krónan| Melabúðin| Fjarðarkaup| Heilsuhúsið| Matarbúðin Nándin| Brauð og co. og nú nýlega fáanlegt í Heimkaupum.

Einnig fæst Kombucha Iceland í BioBorgara| Kaffihúsi Vesturbæjar| Le Kock| Kaffi Laugalæk| Mr. Joy| Mamá| Te og Kaffi| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum.

Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi| Fisk kompaní á Akureyri| Hús handanna á Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum