Tandoori-kjúklingur með kúskússalati og límónusósu
Fyrir 5
4 kjúklingabringur (u.þ.b. 800 g)
½ tsk salt og smá hvítur pipar
4 msk tandoorikrydd
2 msk góð grænmetisolía
Kúskússalatið góða:
5 dl vatn
2 msk ólífuolía
½ tsk flögusalt
2 ½ dl kúskús
½ laukur
2 hvítlauksgeirar
1 rautt chili
½ gúrka
1 avókadó
1 msk sítrónusafi
1 dl saxaður graslaukur (má setja vorlauk)
1 dl kóríander, saxað
2 tsk sesamolía
2 msk ólífuolía
Límónusósa:
1 sítróna, safi
1 límóna, safi
2 dl rjómaostur
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar í jafnstóra bita. Stærðin skiptir ekki höfuðmáli en ef þeir eru jafn stórir eru þeir gegnsteiktir á sama tíma og þá er ekki hætta á að sumir bitar verði ofsteiktir og aðrir of lítið steiktir.
Setjið tandoori-krydd og salt og pipar í djúpan disk og veltið kjúklingabitunum upp úr því Hellið olíu í pönnu og steikið bringurnar á pönnunni við meðal hita þannig að þær brúnist jafnt að utan.
Setjið u.þ.b. ½ dl af vatni á pönnuna, setjið lokið á og lækkið hitann og látið bringurnar eldast í gegn eða þar hitamælir sýnir 65°C kjarnhita. Þetta gæti tekið um það bil 20 mínútur. (Ef þú átt ekki kjarnhitamæli getur þú prófað að skera einn bita í sundur til að fullvissa þig um að hann sé hvítur í gegn).
Setjið 5 dl vatn í pott ásamt 2 msk af ólífuolíu og 1 tsk af salti og látið suðuna koma upp.
Takið af hitanum, setjið kúskús út í, blandið saman og setjið lokið yfir. Látið standa í 5 mínútur. Saxið lauk í þunnar ræmur, merjið hvítlaukinn létt með hnífnum og saxið smátt.
Skerið chili í tvennt og skafið fræin úr og saxið smátt. Flysjið gúrkuna með kartöfluskrælara og skerið í tvennt.
Skafið fræin innan úr með teskeið og skerið gúrkuna í litla teninga. Blandið kúskúsgrjónunum og grænmeti saman.
Skerið avókadó í bita, setjið þá út í og kreistið smá sítrónusafa yfir ( það kemur í veg fyrir að avókadóið verði dökkt að lit í salatinu).
Saxið graslauk og kóríander og hrærið létt saman við ásamt ólífu- og sesamolíu.
Setjið allt sem á að fara í sósuna í matvinnsluvél og maukið saman.
Leggið salatið á diska eða eitt stórt fat. Raðið kjúklingabitunum ofan á og berið fram með límónusósunni. Ef tími vinnst til skelli ég í fljótlegt Naan brauð
Gerlaust naan-brauð
6 stykki
8 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
¾ tsk salt
2 msk olía
1½ dl hreint jógúrt
1 egg
1½ dl mjólk
olía til að pensla brauðið
Aðferð:
Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og olíu, egg, jógúrt og mjólk í annarri skál. Hrærið þetta síðan allt saman og látið standa aðeins og jafna sig.
Stillið ofninn eins hátt og hann kemst, það er algengt að það sé 250°C. Hnoðið deigið og skiptið í 6 jafna bita. Mótið hringlaga kökur,u.þ.b. 25×15 cm.
Setjið á bökunarplötu og bakið brauðin þar til þau hafa tekið lit, það tekur um það bil 5 mínútur. Penslið brauðin með smá olíu þegar þau koma úr ofninum og vefjið inn í viskustykki.