Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögfræðingur og fyrrum knattspyrnumaður var gestur í hlaðvarpsþættinum Draumaliðið þar sem hann fór yfir feril sinn sem knattspyrnumaður.
Vilhjálmur valdi þá draumalið sitt af knattspyrnuferlinum þar sem hann lék meðal annars með bæði Fram og Þrótti.
Talsverða athygli vakti að Emil Hallfreðsson landsliðsmaður í knattspyrnu komst í liðið hjá Villa Vill en þeir hafa aldrei spilað fótbolta saman. Þeir hittust hins vegar í kvöldverð á Ítalíu á dögunum en Emil leikur í dag með Padvoa í Seriu C.
Meira:
Villi Vill rifjar upp kostulegar sögur af Einari Erni heitinum – „Sorglegt og ótrúleg atburðarás“
„Ég ætla að byrja í nútímanum, með manni sem hef ég aldrei spilað með eða æft fótbolta. Við áttum hins vegar stórleik saman í Verona fyrir tveimur vikum, á frábærum veitingastað og vínekru. Það var ógleymanlegt kvöld og ekki síður daginn eftir á vínekru, þetta var frábært kvöld. Þetta kvöld tryggir Emil sæti í draumaliðinu mínu,“ sagði Villi Vill í skemmtilegum þætti hjá Jóhanni Skúla.
Villi og Emil höfðu lengi planað það að hittast á Ítalíu en Vilhjálmur er duglegur að heimsækja landið. „Við höfðum hisst áður en höfðum gert langa atrennu að því að hittast á Ítalíu, ég er mikið í suðrinu í kringum Napoli og hann er í norðrinu. Við vorum búnir að plana nokkur skipti sem gengu svo ekki upp.“
„Ég var þarna í október, hann hringdi í mig og sagði að þetta gengi ekki lengur.“
Vilhjálmur segir að Emil sé goðsögn um alla Ítalíu eftir þrettán ár á Ítalíu þar sem hann hefur lengst af spilað á meðal þeirra bestu.
„Hans ferill og það sem hann hefur gert á Ítalíu, 300 leikir og flestir í Seriu A. Þetta er goðsagnakenndur ferill, það þekkja hann allir. Þegar Ísland og fótbolti kemur til tals, þá þekkja allir Hallfreðsson. Hann er goðsögn í fótboltanum um alla Ítalíu.“
Meira:
Villi Vill rifjar upp kostulegar sögur af Einari Erni heitinum – „Sorglegt og ótrúleg atburðarás“