fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fréttir

Maður lést í vinnuslysi á Suðurlandi í nótt

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 22. október 2020 17:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður lést í vinnuvélaslysi á Suðurlandi í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.

Mun maðurinn hafa verið að störfum á jarðýtu er hún valt fram af bjargbrún. Beðið var með að tilkynna um slysið opinberlega þar til hægt væri að láta börn hins látna vita af andláti hans. Samkvæmt heimildum DV átti maðurinn níu börn, sum þeirra uppkomin.

Tilkynning lögreglu var eftirfarandi:

„Kl. 07:02 í morgun barst Neyðarlínu tilkynning um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg.   Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið.

Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhverntíman á tímabilinu eftir kl. 23:00 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar.  Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vill reka Reykjanesbæ eins og fyrirtæki

Vill reka Reykjanesbæ eins og fyrirtæki
Fréttir
Í gær

Söfnun fyrir Maríu og fjölskyldu hennar

Söfnun fyrir Maríu og fjölskyldu hennar
Fréttir
Í gær

Danir hætta að bera út bréf og selja póstkassana sína

Danir hætta að bera út bréf og selja póstkassana sína
Fréttir
Í gær

Obama hjónin áttu að hitta Reiner hjónin hið örlagaríka kvöld

Obama hjónin áttu að hitta Reiner hjónin hið örlagaríka kvöld
Fréttir
Í gær

Útvarpsstjóri Sýnar segir aðgerðir Loga ekki nóg – Vill losna við Rás 2

Útvarpsstjóri Sýnar segir aðgerðir Loga ekki nóg – Vill losna við Rás 2
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sárþjáð vegna erfiðs sjúkdóms en fær ekki sérhæfða meðferð erlendis endurgreidda – Læknir segir fullnægjandi meðferð ekki í boði á Íslandi

Sárþjáð vegna erfiðs sjúkdóms en fær ekki sérhæfða meðferð erlendis endurgreidda – Læknir segir fullnægjandi meðferð ekki í boði á Íslandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Genginn aftur í þjóðkirkjuna eftir langa fjarveru – „Snjallt hjá stjórnvöldum að láta fólk ráðstafa sínum sóknargjöldum“

Genginn aftur í þjóðkirkjuna eftir langa fjarveru – „Snjallt hjá stjórnvöldum að láta fólk ráðstafa sínum sóknargjöldum“