fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Eyjan

Mogginn hraunar yfir stjórnarskrárfólkið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. október 2020 12:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það sýnir ágætlega yfirganginn í sértrúarsöfnuðinum sem kallar sig Stjórnarskrárfélagið hvernig hann bregst við því þegar þeir sem sjá um eignir Stjórnarráðsins þrífa
burt krot af veggjum þess. Óprúttinn veggjakrotari hafði málað slagorð um nýja stjórnarskrá á vegg sem hann átti ekki og án leyfis og þegar eigandinn þreif vegginn voru
viðbrögð formanns Stjórnarskrárfélagsins að fordæma þrifin, ekki veggjakrotið!“ segir í Staksteinum Morgunblaðsins í dag og kveður þar við mjög neikvæðan tón í garð þeirrar grasrótarhreyfingar sem berst fyrir því að þær breytingar á stjórnarkrá sem kosið var um árið 2012 öðlist gildi.

Staksteinar væna Ríkisútvarpið einnig um gildishlaðna umfjöllun um málið og segja RÚV vera gengið í Stjórnarskrárfélagið:

„Athygli vakti líka að Ríkisútvarpið birti frétt um málið þar sem ríkisstofnunin kallaði þessi sjálfsögðu viðbrögð þeirra sem hafa umsjón með eignunum „þrifaæði“ í fyrirsögn. Þessi furðulega ríkisstofnun er auðvitað gengin í Stjórnarskrárfélagið og kemur út af fyrir sig ekki á óvart að þessir hópar sameinist, en hversu viðeigandi er það að skattfé sé notað til að afflytja fréttir af þrifum á eigum skattgreiðenda?“

Staksteinar kalla Stjórnarskrárfélagið sértrúarsöfnuð og vísar til myndskeiðs af fundi félagsins þar sem þeir kyrja möntru „um að þeir strjúki stórum ísmola blítt um leið og þeir ganga að honum og leggja hendur yfir hann.“

Staksteinar spyrja hvort eignaspjöll verði varin í nýrri stjórnarskrá í stað eignarréttarins eins og nú er.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben