fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Fréttir

Spáir fjölgun ferðamanna á næstunni

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 14. júlí 2020 08:00

Ferðamenn á Þingvöllum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ágúst á síðasta ári komu um 252 þúsund erlendir ferðamenn hingað til lands. Skarphéðinn Steinarsson, ferðamálastjóri, segir að áætlað sé að í ágúst á þessu ári komi um 25% af þessum fjölda hingað til lands. Það þýðir að um 63 þúsund erlendir ferðamenn komi í ágúst.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Skarphéðni að fleiri erlendir ferðamenn hafi komið í skimun á Keflavíkurflugvelli en reiknað var með þegar fólk fór að ferðast á nýjan leik.

„Fjöldinn er þegar umfram það sem menn gerðu ráð fyrir í afkastagetu í skimun í þessum mánuði. Þeir sem eru með puttann á púlsinum í sölu- og markaðsmálum erlendis segja okkur að það sé klár ferðavilji hjá nokkrum þjóðum, sérstaklega, Dönum, Þjóðverjum og Norðmönnum. Og jafnvel líka Hollendingum.“

Er haft eftir Skarphéðni.

Tölur frá Isavia sýna að flugferðum fer fjölgandi til og frá landinu. Í gær voru samtals 16 og 40 komur og brottfarir en 15. júní voru þær 16. Völlurinn starfar þó aðeins á 4-5% afköstum því þar er hægt að taka við um 40 þúsund farþegum á dag að sögn Guðjóns Helgasonar upplýsingafulltrúa Isavia.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“
Fréttir
Í gær

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum