fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Lára um bestu jólagjöfina: Af hverju látum við það allra mikilvægasta mæta afgangi?

Mikilvæg áminning í aðdraganda jólanna

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 18. desember 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Samkvæmt langtímarannsókn frá Harvard háskóla taldi ungt fólk frægð og frama ryðja slóðina að hamingjunni. Þegar upp var staðið var raunin önnur.“

Þetta segir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Samverustundirnar mæta afgangi

Þar skrifar Lára um bestu jólagjöfina og bendir á að í aðdraganda jólanna heyrum við stundum að samverustundirnar séu það sem skiptir höfuðmáli.

„Pakkarnir, hátíðarmaturinn og allt annað sem fylgi sé partur af sviðsmynd en ekki aðalatriði. En þegar þetta er skoðað nánar þá virðist oft sem við forgangsröðum þannig að samverustundirnar mæti afgangi.“

Mætti ekki í stórafmæli vinkonu sinnar

Sjálf segist Lára ekki vera nein undantekning í þessum efnum. Bendir hún á að sjálf hafi hún eytt mörgum aðfangadögum og áramótum í vinnunni, bæði áður en og eftir að börnin komu til sögunnar.

„Þetta er ekki einsdæmi. Ég mætti heldur ekki í stórafmæli vinkonu minnar fyrir mörgum árum af því að ég var að læra undir lokapróf. Hún hefur hvorki fyrr né síðar haldið upp á afmæli sitt. Skemmtilegar sögur úr afmælinu eru reglulega rifjaðar upp og ég minnt ósjálfrátt á að ég hafi ekki verið til staðar til að samgleðjast,“ segir Lára sem spyr hvers vegna við látum prófalestur, vinnu og jafnvel íþróttaæfingar ganga fyrir samverustundum með okkur nánustu?

„Erum við jafnvel hrædd um að verða ekki eins góð og hin ef við sláum slöku við í eina kvöldstund? Eða erum við of þreytt eftir annasama daga og mikið álag til að gefa af okkur?“

Greiðasta leiðin að innihaldsríku lífi

Lára bendir á að samkvæmt langtímarannsókn frá Harvard-háskóla hafi ungt fólk talið frægð og frama ryðja slóðina að hamingjunni.

„Þegar upp var staðið var raunin önnur. Það að eiga góðar stundir með sínum nánustu reyndist gefa greiðustu leiðina að hamingjusömu og innihaldsríku lífi. Við stöndum uppi sem meiri sigurvegarar þegar við eigum góðar stundir með öðrum heldur en á verðlaunapalli eða með enn eitt verkefnið í höfn. Besta gjöfin sem við gefum er nefnilega tíminn okkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum