fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Heillandi jólabirta: Sífellt fleiri láta skreyta hús sín fyrir jólin

Kynning

Garðaþjónusta Íslands

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 24. nóvember 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þróunin er sú að sífellt fleiri nýta sér þessa þjónustu – að láta okkur setja upp jólaseríur á hús sín. Hins vegar finnst okkur íburðurinn ekki vera að aukast heldur er fólk að sækjast eftir einföldum, stílhreinum seríuuppsetningum. Minna er meira, þannig virðist tíðarandinn vera núna.“

Þetta segir Hjörleifur Björnsson, eigandi Garðaþjónustu Íslands ásamt Róberti Bjargarsyni. Mjög hefur færst í vöxt að landsmenn kaupi hjá þeim jólaskreytingarþjónustu á aðventunni sem felst þá í uppsetningu jólasería utan á hús, á tré og í görðum.

Garðaþjónusta Íslands veitir húseigendum afar fjölbreytta og umfangsmikla þjónustu eins og lesa má um á heimasíðu fyrirtækisins, garda.is. Á þessum árstíma býður fyrirtækið einnig upp á hálkueyðingu og snjómokstur, sem margir nýta sér.

Að sögn Hjörleifs hefur mikil framþróun orðið í gerð þeirra pera sem eru í ljósaseríunum þeirra:

„Við erum nær eingöngu með svokallaðar LED-seríur sem hafa ekki þessa skæru stingandi birtu heldur fallega birtu sem tónar vel við umhverfið og andann. Einu skiptin sem við notum ekki LED-perur er þegar fólk á gamlar seríur sjálft eða biður sérstaklega um annað.“

Hægt að skreyta fyrir bæði mikinn og lítinn pening

Fólk getur valið um að kaupa seríur af Garðaþjónustunni eða nota seríur sem það á sjálft. Einnig er í boði að geyma seríur hjá Garðaþjónustunni. Í sumum tilvikum hefur fólk seríuna utan á tré allt árið en slekkur á ljósunum eftir jólin eða í lok skammdegistímans.

Hægt er að skreyta fyrir háar fjárhæðir ef fólk vill mikið umfang og síðan er líka hægt að skreyta fyrir mjög viðráðanlega upphæð með einföldum en fallegum seríum sem gefa frá sér aðlaðandi jólabirtu.

Róbert Bjargarson (t.v.) og Hjörleifur Björnsson (t.h.)
Eigendur Garðaþjónustu Íslands Róbert Bjargarson (t.v.) og Hjörleifur Björnsson (t.h.)

Nánari upplýsingar um þjónustuna veita:

Hjörleifur Björnsson í síma 844-6547, netfang hjorleifur@garda.is
og Róbert Bjargarson í síma 866-9767, netfang robert@garda.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum