16 ára frönsk stúlka lést í gær af völdum COVID-19 að sögn franskra heilbrigðisyfirvalda. Hún var ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma. Hún er yngsta þekkta fórnarlamb veirunnar í Frakklandi.
COVID-19 faraldurinn herjar af miklum þunga á Frakkland þessa dagana. Frá miðvikudegi til fimmtudags létust 365 af völdum veirunnar.