Bandarískur fangi, Kharon Davis að nafni, hefur setið í fangelsi undanfarin tíu ár án þess að hafa verið dæmdur. Árið 2007 var hann ákærður fyrir morð í Alabama og allar götur síðan hefur hann setið í fangelsi og beðið réttarhalda.
New York Times fjallaði um þetta óvenjulega mál á dögunum en Davis var 22 ára þegar morðið var framið. Hann er sagður hafa myrt ungan mann, Pete Dwayne Reaves að nafni, árið 2007 ásamt tveimur öðrum mönnum. Kharon og samverkamenn hans ætluðu að kaupa marijúna af Pete en ósætti varð til þess að skotum var hleypt af og lá Pete í valnum.
Annar þeirra manna sem var með Davis umrætt kvöld var dæmdur í 99 ára fangelsi en hinn var sýknaður. Þrátt fyrir að tíu ár séu liðin frá morðinu virðist Davis þurfa að bíða lengur. Ástæður tafarinnar eru jafn misjafnar og þær eru margar. Verjandi hans á upphafsstigum málsins var faðir eins af þeim lögreglumönnum sem kom að rannsókn málsins. Hann þurfti því að segja sig frá málinu.
Síðan þá hefur Davis ráðið sér nýja lögmenn í þrígang. Loks hefur einn dómari hætt sökum aldurs og annar dómari þurfti tíma til að setja sig inn í málið. Allt þetta og fleira til hefur valdið því að tafir hafa orðið á afgreiðslu málsins.