fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Telur Áslaugu hafa talað af sér og brögð séu í tafli – „Karlarnir standi henni greinilega framar“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 18. desember 2019 09:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður, segir að allt ferlið í kringum skipan nýs hæstaréttardómara sé leikrit þar sem búið sé að ákveða niðurstöðuna fyrirfram. Þá telur hann einnig að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi talað af sér í viðtali er hún viðurkenndi að hún myndi líta til kynferðis umsækjenda í ákvörðun sinni, en Jón Steinar bendir á að slíkt sé bannað samkvæmt stjórnarskránni.

Segir Jón Steinar að af þeim þremur umsækjendum sem metnir hafi verið hæfastir, séu tveir karlar augljóslega hæfari en konan, en þar sem búið sé að ákveða niðurstöðuna, verði konan hinsvegar skipuð.

Grein Jóns Steinars er eftirfarandi:

 

Jafn réttur í hvívetna

Nú verður skipað í embætti hæstaréttardómara. Fyrir liggur umsögn nefndar um hæfni umsækjenda. Hrósa ber nefndinni fyrir að hafna með öllu aðferðafræði þeirrar nefndar sem mat umsækjendur um embætti í Landsrétti þegar hann var stofnaður. Um þetta hef ég skrifað áður og tel ekki ástæðu til að endurtaka nú.

Menn ættu hins vegar að átta sig á því að hér er skrifað eins konar leikrit, sem miðar að skipun umsækjanda, sem fyrir fram er búið að ákveða að skuli hljóta embættið, þó að öllum sem til þekkja sé ljóst að sá umsækjandi stendur ekki jafnfætis öðrum að hæfni.

Nefndin kaus að setja þrjá umsækjendur jafna í efsta sæti, tvo karla og eina konu. Konan verður skipuð. Hún var sett jafnfætis hinum svo ráðherrann gæti samkvæmt gildandi lagareglum skipað hana. Þetta var sýnilega gert vegna kynferðis umsækjandans. Hún er auðvitað hæfur lögfræðingur, þó að karlarnir standi henni greinilega framar, eins og öllum er ljóst sem til þekkja. Það gera reyndar einnig fleiri umsækjendur.

Í viðtali við ráðherrann á mbl.is í gær (mánudag) var þannig haft eftir henni, þegar hún var spurð hvort kynferði umsækjenda myndi hafa áhrif á ákvörðun hennar: „Ég hef alltaf talað fyrir því og mun áfram tala fyrir því að það sé á meðal þeirra þátta sem skuli líta til þegar skipað er í embætti eins og lög segja líka til um.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur vaxið verulega í starfi sínu sem ráðherra. Hér verður henni hins vegar á, þegar hún svarar því beint út að kynferði umsækjenda muni hafa áhrif á ákvörðun hennar. Í 65. gr. stjórnarskrárinnar er skýrt tekið fram að svona sjónarmið eru andstæð lögum, því þar segir: „Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“

Hvað sem líður ákvæðum í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, er stjórnvaldshöfum óheimilt, eftir að umsækjendur um stöðu eru komnir fram, að velja á milli þeirra eftir kynferði. Þetta felst í stjórnarskrárákvæðinu.

Þó að ég hafi tröllatrú á hinum nýskipaða dómsmálaráðherra þykist ég sjá í hendi mér að hún muni ekki standast þrýstinginn úr umhverfinu. Hún mun loka leikverkinu og skipa konuna. Tjaldið mun svo falla.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki