fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Eyjan

Styrmir ráðinn til Arion banka

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 11. desember 2019 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Sigurjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka og mun hefja störf þann 17. febrúar næstkomandi.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að Styrmir hafi víðtæka reynslu á sviði upplýsingatækni og vöruþróunar. Hann hefur frá árinu 2009 starfað hjá Natera í Bandaríkjunum. Natera sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar og er skráð í Nasdaq CM kauphöllina. Styrmir hefur frá árinu 2012 gegnt ýmsum stjórnunarstörfum hjá Natera, verið framkvæmdastjóri rannsóknar og vöruþróunar frá árinu 2017 og stýrt yfir 200 manna þróunarteymi sem er staðsett í mörgum löndum. Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbanka Citi.

Styrmir er með doktors- og meistarapróf í rafmagnsverkfræði frá Stanford og C.S. próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. Styrmir er giftur Berglindi Erlingsdóttur mannfræðingi og eiga þau þrjú börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður