Jose Mourinho, stjóri Tottenham, viðurkennir að hann hafi reynt að kaupa suma leikmenn liðsins á sínum tíma.
Mourinho var ráðinn til Tottenham á dögunum en hann var áður stjóri Chelsea og Manchester United.
,,Besta gjöfin eru leikmennirnir sem eru hérna. Ég þarf ekki nýja leikmenn,“ sagði Mourinho.
,,Ég þarf bara að kynnast þessum betur. Ég veit að þú þekkir þá aldrei nógu vel þar til þú hittir þá.“
,,Ég sagði við leikmennina að ég væri hér vegna þeirra. Ég reyndi að kaupa suma af þeim fyrir önnur félög og með aðra þá reyndi ég ekki því það var of erfitt.„