Fjölmiðlakonan og útvarpsstjarnan Vera Illugadóttir selur nú íbúð sína á Leifsgötu 10 í miðborginni. Vera hefur slegið í gegn með þáttum sínum, Í ljósi sögunnar og Leðurblakan, á Rás 1.
Um er að ræða mjög notalega 55,3 fermetra tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu húsi.
Íbúðinni og húsinu er lýst með fögrum hætti á fasteignavef Mbl.is.
„Húsið er sérlega fallegt, byggt í þeim sérstaka stíl sem einkennir Leifsgötu, Eiríksgötu og fleiri götur þar í kring. Verið er að ljúka við viðgerðir á húsi og þaki. Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu, svefnherbergi, baðherbergi og rúmgott og bjart eldhús. Vel staðsett eign í fallegu húsi […] Gengið er inn í húsið um glæsilegar eikardyr. Stigagangur er vel umgenginn, með dúk á gólfi og fallegum gömlum viðar handlista á handriði. Komið er inn í hol íbúðarinnar úr stigagangi, en gengið er úr holi í öll rými íbúðarinnar. Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs. Svefnherbergi við hlið stofu er sömuleiðis bjart og rúmgott, með stórum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, með sturtuklefa, innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Eldhús er rúmgott, með hvítri innréttingu, plássi fyrir eldhúsborð og glugga til norðurs að Leifsgötu. Parketdúkur á eldhúsgólfi en parket á holi, stofu og herbergi.“
Sjáðu myndir af íbúðinni hér að neðan.