Nú í vetrarbyrjun gera ábyrgir ökumenn bílinn sinn kláran fyrir vetraraksturinn og komandi umhleypinga. Þá er lykilatriði að velja réttu dekkin og því eru réttu ráðin nauðsynleg. Nesdekk rekur nú sex hjólbarðaverkstæði á landinu og veita starfsmenn viðskiptavinum upplýsta ráðgjöf um hvers konar dekk henta hverri bifreið fyrir sig.
Fagmennska hjá Nesdekk
Að sögn Gests Árskóg, þjónustustjóra hjá Nesdekk að Breiðhöfða 13, er mikil áhersla lögð á faglega ráðgjöf til viðskiptavina hjá fyrirtækinu. „Það er viðurkennd staðreynd að dekkin hafa heilmikið að segja um aksturseiginleika bílsins. Við val á réttum dekkjum er til margs að líta. Það sem hentar einum viðskiptavini, hentar kannski alls ekki þeim næsta. Bílar og notkun þeirra er oft mismunandi, sem og aksturslag ökumanna. Við hjá Nesdekk göngum út frá því að mikilvægt sé að hver og einn fái þau dekk sem henti hans eða hennar aðstæðum, hvort sem það er vinnutengt eða lúti að heimilisreksri. Við kappkostum að hjá fyrirtækinu séu fagmenn að störfum sem geta veitt viðskiptavinum bestu ráð um dekkjaval.“
Nesdekk á 6 stöðum á landinu
Nú eru sex hjólbarðaverkstæði rekin undir merkjum Nesdekk á landinu: Breiðhöfða 13, Fiskislóð 30, Grjóthálsi 10, Lyngási 8 Garðabæ, Njarðarbraut 9 Reykjanesbæ og nýjasti meðlimur Nesdekk-keðjunnar er að Njarðarnesi 1 á Akureyri.
„Hjólbarðaverkstæðið að Breiðhöfða 13 er stærsta og fullkomnasta verkstæði landsins. Það er sérhannað fyrir starfsemina, með tækjabúnaði og aðstöðu til að veita bílum af öllum stærðum fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu,“ segir Gestur og nefnir meðal annars niðurgrafnar lyftur og snertilausar umfelgunarvélar. „Þá býður hönnunin upp á þá nýjung að hópferða- og vöruflutningabílar geta keyrt í gegnum verkstæðið, sem er mun þægilegra fyrir bæði viðskiptavinina sem og starfsmenn okkar,“ segir Gestur.
Öryggið hvílir á lófastórum bletti
Að sögn Gests hefur þróunin í dekkjaframleiðslu verið mikil undanfarin ár og mætti jafnvel tala um byltingu hvað varðar gúmmíblöndur, gæðaeftirlit og áherslur á öryggi. „Allir bíleigendur ættu að gera sér grein fyrir því að snertiflötur dekkjanna, sem er í raun aðeins lófastór blettur, getur skipt svo ótrúlega miklu máli þegar mest mæðir á í umferðinni. Sérstaklega er þetta áríðandi yfir veturinn þar sem von er á versta veðrinu; ís, snjó, krapa og slyddu. En allt þetta og meira til þarf dekkið að kljást við og það kannski á einum og sama deginum, eins og á Íslandi. Þess vegna er nauðsynlegt að þekkja inn á eiginleika dekkjanna.“
Mikið dekkjaval hjá Nesdekk
„Öll Nesdekk-verkstæðin eiga það sameignlegt að veita bíleigendum fyrsta flokks þjónustu og bjóða upp á einhverja breiðustu línu af hjólbörðum sem völ er á.“
Hjá Nesdekk finnur þú hjólbarða frá þekktustu framleiðendum í heimi s.s. TOYO, PIRELLI, BFGOODRICH, MAXXIS, INTERSTATE og DOUBLE COIN vörubíladekk ásamt fjölmörgum öðrum.