fbpx
Fimmtudagur 16.október 2025
Fréttir

Sanna slátrar femínisma Íslandsbanka: „Ætlar bankinn að afnema hraðbankagjöld fyrir fátæku láglaunakonurnar?“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 28. október 2019 11:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, skefur ekki af því í stöðufærslu á Facebook. Hún segir áætlunum Íslandsbanka um að hætta viðskiptum við þá fjölmiðla sem ekki standast tiltekin skilyrði sem snúa að kynjahlutföllum vera hræsni. Það var Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka, sem kynnti þessa stefnu. Að hennar sögn gæti bankinn gert margt til að bæta jafnrétti kynjanna en velur að gera einungis það sem hefur ekki áhrif á gróða bankans.

„Mér finnst frábært þegar fyrirtæki setja upp kynjagleraugun með gagnrýnum hætti og kveðja „auglýsingar hjá fjölmiðlum sem bjóða upp á afgerandi kynjahalla“ svo vitnað sé í markaðs- og samskiptastjóra Íslandsbanka. Bankinn greindi nýverið frá því að hann vildi horfa í auknu mæli til jafnréttismála. Það hallar víða á konur í samfélaginu og það þarf heldur betur að bæta úr því. Í ljósi umræðunnar sendi Íslandsbanki frá sér skilaboð á heimasíðu sinni sem hér segir: „Íslandsbanki hefur sett sér þá stefnu að vera hreyfiafl til góðra verka. Í kjölfar stefnumótunar bankans var í samræmi við hana ákveðið að vinna að fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna; lofslagsmálum, jafnrétti kynjanna, nýsköpun og menntun“,“ skrifar Sanna.

Sleppa mikilvægu markmiði

Hún segir að það jafnrétti sé ekki það fyrsta sem hún hugsar um þegar hún heyrir orðið banki. „Við þurfum að muna það að hér erum við að tala um banka. Banka, sem lánar fólki t.d. pening, sem það þarf að greiða til baka með háum vöxtum. Og við erum að tala um jafnréttismál, samanber femínisma. Þó svo að ég trúi því að fólk hljóti að meina vel með því að taka ákveðin skref í átt að jafnrétti, hér varðandi aukinn sýnileika kvenna innan karllægra fyrirtækja, þá bendir þetta á sama tíma okkur á hvernig starfsemi bankans í eðli sínu viðheldur ójafnrétti á öðrum sviðum. Hér erum við erum að tala um banka, sem í núverandi mynd er eitt af því kapítalískasta sem fyrirfinnst þannig ég sé ekki hvernig jafnrétti og banki eiga saman í sömu setningu. Í því samhengi sé ég ekki hvernig í ósköpunum banki getur verið hreyfiafl til góðra verka í jafnréttismálum?,“ segir Sanna.

Íslandsbanki hefur ítrekað borið fyrir sig að áætlunin sé hluti af markmiðum Sameinuðu þjóðanna. „Jafnrétti snýst um meira en það að skoða eingöngu hindranir sem kunna að vera á vegi fólks vegna kyns. Það þarf líka að skoða hvernig aðrir þættir, líkt og slæm efnahagsleg staða, mótar veruleika fólks og greina það í samspili við kyn og hvernig slíkt getur verið hindrun í átt að jafnrétti. Eitt af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sem er listað fyrst í upptalningunni er Engin fátækt. Hvernig ætlar bankinn raunverulega að vinna að jafnrétti ef hann ávarpar ekki þátt sinn í því að viðhalda efnahagslegu ójafnrétti? Ætli bankinn taki það kannski bara upp síðar í jafnréttisáætlun sinni, eða kannski aldrei?,“ spyr Sanna.

Hvað með fátækar konur?

Hún segir bankann lítið ræða fátækt. „Þegar orðið fátækt er slegið inn í leitarvél á heimasíðu Íslandsbankans, kemur ein niðurstaða fram en það er í byrjun á setningu sem hljóðar svo „Bankinn hefur meðal annars látið til sín taka í baráttunni við fátækt, heimsmarkmið 1 […] Hinn hluti setningarinnar telur síðan upp önnur heimsmarkmið sem bankinn vinnur að en ekkert er nánar fjallað um hvernig bankinn hafi látið til sín taka í baráttunni við fátækt eða hvort hann ætli að halda áfram á þeirri vegferð. Neðar er svo fjallað um samfélagsábyrgð,“ segir Sanna.

Sanna bendir á að bankinn gæti gert ýmislegt til að hjálpa konum. „Konur eru í meirihluta í þeim láglaunastörfum sem teljast til hefðbundinna kvennastétta, líkt og umönnunarstörf. Ætlar bankinn að bjóða sérkjör fyrir þær konur sem greiða mánaðarlega um marga þúsundkarla í útvexti af hárri yfirdráttarheimild sinni sem þær hafi ekki náð að greiða niður? Eða samrýmast fátækar konur, ekki þeim jafnréttismálum sem Íslandsbankinn er að leitast við að vinna að núna? Þurfa þær konur bara að bíða? Eins og svo oft áður? Fá sömu láglaunakonurnar sem fá greiddar um 300.000 krónur inn á reikninginn sinn mánaðarlega, undanþágu frá því að greiða árlegt gjald vegna bankaábyrgðar sem þær nota sem tryggingu vegna leigusamninga?,“ spyr Sanna.

Dýrt að vera fátækur

Hún heldur áfram og nefnir nokkur dæmi: „Ætlar bankinn að afnema hraðbankagjöld fyrir fátæku láglaunakonurnar sem maxa VISA og taka reglulega út af kortinu sínu í gegnum hraðbankann og millifæra allann þann pening inn á almennan bókarlausan til að geta greitt reikninganna, því launin voru búin svo snemma í mánuðinum? Það er dýrt að vera fátækur og gjöldin eru fljót að hrannast upp þegar viðkomandi tekur út frekar háar upphæðir af VISA og er kominn í vítahring skuldafens. Er þetta ekki kjörið verkefni í jafnréttisplaggið ykkar kæri Íslandsbanki? Að hjálpa láglaunakonum úr skuldafeni með því að afnema óþarfa gjaldtöku? Sýnir það ekki samfélagslega ábyrgð í verki að hagnast ekki af þeim sem standa verst í samfélaginu?“

Hún segir þetta útspil Íslandsbanka sýna að Ísland þarf öðru vísi banka. „Jafnrétti verður aldrei náð fyrr en við erum öll laus úr viðjum kúgunar, þar sem helsta ójafnréttið á götum margra er efnahagslegt ójafnrétti og bankar eiga vissulega sinn hlut í að viðhalda því. Við þurfum virkilega á samfélagsbanka á að halda, þar sem markmiðið snýst um að þjóna hagsmunum almennings. Fjárhagslega drifnir bankar sem starfa að því markmiði að skila hluthöfum sínum gróða eru ekki lausnin sama hversu falleg jafnréttisáætlun þeirra gæti orðið. Með einni hendi er verið að vinna að því að auka á sýnileika kvenna, þar sem hallar á þær en með hinni hendinni hafa bankarnir vald til þess að ýta fátækum konum og þeim sem hafa það allra verst í samfélaginu niður í efnahagslegt öngþveiti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðni: Framsóknarflokkurinn á heljarþröm – „Aldrei staðið jafn vopnlaus og illa á sig kominn“

Guðni: Framsóknarflokkurinn á heljarþröm – „Aldrei staðið jafn vopnlaus og illa á sig kominn“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dómur fallinn í stóra skiltamáli Ormsson – „Böl verður ekki bætt með því að benda á eitthvað annað“

Dómur fallinn í stóra skiltamáli Ormsson – „Böl verður ekki bætt með því að benda á eitthvað annað“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hildur setur fótinn niður: „Ég fer fram á það að samfélagið hætti að gera lítið úr nemendum mínum“

Hildur setur fótinn niður: „Ég fer fram á það að samfélagið hætti að gera lítið úr nemendum mínum“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Greindist loks eftir 23 heimsóknir á heilbrigðisstofnanir – Bundinn við hjólastól en fær engar bætur

Greindist loks eftir 23 heimsóknir á heilbrigðisstofnanir – Bundinn við hjólastól en fær engar bætur
Fréttir
Í gær

Steinþór vill breytingar á fánalögunum: „Ég mun senda tölvupóst til allra 63 þingmanna Alþingis”

Steinþór vill breytingar á fánalögunum: „Ég mun senda tölvupóst til allra 63 þingmanna Alþingis”
Fréttir
Í gær

Kristján missti föður sinn 15 ára og grét ekki við jarðarför hans – „Það er engin handbók við áföllum“

Kristján missti föður sinn 15 ára og grét ekki við jarðarför hans – „Það er engin handbók við áföllum“
Fréttir
Í gær

Reynir Trausta dæmdur fyrir meiðyrði – Nafngreindi rangan mann í tengslum við alvarlega stunguárás

Reynir Trausta dæmdur fyrir meiðyrði – Nafngreindi rangan mann í tengslum við alvarlega stunguárás
Fréttir
Í gær

Fær skilorðsbundinn dóm fyrir stórhættulega hnífstunguárás á Seltjarnarnesi – Hefur bætt ráð sitt og lokið námi

Fær skilorðsbundinn dóm fyrir stórhættulega hnífstunguárás á Seltjarnarnesi – Hefur bætt ráð sitt og lokið námi