fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Salsa er ekki bara sósa

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 18. október 2019 14:00

Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Edda Blöndal hóf starfsemi SalsaIceland á Íslandi árið 2003 þurfti hún iðulega að útskýra fyrir fólki að um væri að ræða suðurameríska dansa en ekki sósu. Eins gat verið erfitt að ná karlpeningnum út á dansgólfið um hábjartan dag. En nú, 16 árum síðar, segir hún stemninguna hafa breyst mikið og flestir viti nú hvað salsa dansar eru og að feimnin sé óðum að renna af Íslendingum. Sjálf hafði Edda ferðast mikið þegar hún keppti með landsliði Íslands í karate í mörg ár og smitaðist af salsabakteríunni erlendis. Hana langaði til að stofna salsaskóla á Íslandi og koma á fót eins konar salsasamfélagi á Íslandi. Með aðstoð vina og vandamanna og fjöldanum öllum af góðum gestakennurum hefur SalsaIceland mótað metnaðarfullan dansskóla með námsskrá þar sem dansar eru kenndir á 6 getustigum.

Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Alþjóðlegt tungumál

Á námskeiðum eru kennd grunnspor í algengustu salsadönsunum og nemendum kennt að lesa hið alþjóðlega „salsa tungumál“. Það felst í því að leiðandi aðilinn í dansinum, yfirleitt karlmaður, gefur dansfélaga sínum, sem yfirleitt er kona, ákveðin merki um hvað gerist næst í dansinum. Þannig geta allir dansað við alla, innanlands sem utan. SalsaIceland hefur staðið fyrir fjölmörgum utanlandsferðum þar sem nánast er dansað frá morgni og fram á rauða nótt. Í salsadansi eru kennararnir ekki endilega lærðir dansarar sem hafa alist upp innan hefða samkvæmisdansins, heldur eru þeir með fjölbreyttan bakgrunn og hafa tileinkað sér ólíka stíla frá ýmsum gestakennurum í gegnum tíðina.

Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Kúbverskir götudansar

Auk sjálfra dansnámskeiðanna er tilgangur SalsaIceland líka að skapa og bjóða upp á opið salsasamfélag sem sé samboðið danssamfélögum sem þekkjast víða erlendis; þar sem hægt er að mæta á skemmtun með seiðandi suðuramerískri tónlist og dansa við hvern sem er, því allir kunna sporin. Edda segir að á slíkum stöðum séu aðeins stundaðir „social“ dansar, það er að segja aðeins er dansað sér til gamans og á það lítið skylt við það sem fólk sér af keppnum í suðuramerískum samkvæmisdönsum. Salsadansar eru svokallaðir götudansar sem eru sérstaklega algengir á götum úti á Kúbu. Þar eru þeir dansaðir hvort sem er á dansgólfi á skemmtistað eða í skírnarveislu. Hjá SalsaIceland er því gleðin og ánægjan af hverri dansstund í fyrirrúmi.

Menningarnótt 2019 – Dans á Ingólfstorgi. Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Salsafjölskyldan

Á hverju miðvikudagskvöldi, allt árið, er hægt að mæta á salsakvöld og fá frían prufutíma í salsadansi. Edda hvetur alla sem áhuga hafa, til að kíkja við og prófa, því vel sé tekið á móti öllum nýliðum. Það duga heldur engar afsakanir því fólk þarf ekki að koma sem par enda er algengast að það séu einstaklingar sem koma. Í salsafjölskyldunni er það síður en svo vandamál því hefðin er sú að allir dansa við alla. Gestir SalsaIceland vilja oft brjótast úr viðjum vanans og gera eitthvað nýtt – kynnast nýju fólki og prófa nýja tegund af félagslífi, enda er hópurinn lífsglaður, stéttlaus og kynslóðabilið brúað. Salsahjónabönd og -fjölskyldur hafa orðið til, og margir sem staddir hafa verið á krossgötum í lífinu hafa fundið nýjan, dýrmætan vinahóp.

Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Engar afsakanir lengur

Hægt er að fá SalsaIceland til að að sýna á skemmtunum, taka á móti gæsa- og steggjahópum og í hreinlega flest það sem er salsatengt. Gjafabréf á dansnámskeið hafa verið óhemju vinsæl sem jólagjafir enda ekki slæmt að geta gefið hreyfingu, gleði og aðgöngumiða inn i nýjan fjölmenningarheim um leið og þú losar þig við gömlu íslensku feimnina.

Ljósmyndari: Leifur Wilberg

Fylgstu með á Facebook: Salsa Iceland og á salsaiceland.org ef þú vilt fá meira salsa í líf þitt. Það er ekki eftir neinu að bíða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum