fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
FókusKynning

Klassískt postulín í bland við nýrri og djarfari stíla

Kynning

Borð fyrir tvo flutt í Síðumúlann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 10. júní 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunin Borð fyrir tvo, sem meðal annars er þekkt fyrir afskaplega fallegan og vinsælan borðbúnað, flutti snemma árs af Laugavegi 97 upp í Síðumúla 33. Una Gunnarsdóttir eigandi er afar ánægð með nýju staðsetninguna: „Það eru að verða svo miklar og jákvæðar breytingar hérna í Síðumúlanum, fjölbreyttari verslanir og töluvert mikið af húsbúnaðarverslunum. Hér er góð aðkoma og næg bílastæði fyrir fólk að leggja í hér fyrir utan. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við flutningnum hjá viðskiptavinum, fólk er ánægt með að fá okkur hingað.“

Í Borð fyrir tvo fæst gott úrval af vönduðu og fallegu postulíni á fínu verði, eða eins og Una segir: „Ég náði góðum samningi við framleiðanda sem framleiðir postulín fyrir þekkt merki eins og t.d. Ralph Lauren og Charter Club-línuna fyrir Macy’s og með því að versla beint og sleppa milliliðum er hægt að bjóða hagstæðara verð. Annar kostur við þetta fyrirkomulag er sá að ég get stjórnað því hvað línurnar fást lengi hjá mér og þarf ekki að sætta mig við að einhver lína sé tekin úr framleiðslu af því hún er ekki nægilega vinsæl lengur á stórum erlendum mörkuðum. Í þessum bransa eru tískustraumar eins og annars staðar og framleiðendurnir taka þátt í sýningum tvisvar á ári þar sem þeir eru undir miklum þrýstingi um að koma fram með eitthvað nýtt. Það aftur á móti veldur því að þeir geta ekki haldið öllum fyrri línum í framleiðslu. Ég þarf hins vegar ekki að hafa áhyggjur af þessu.“

Að sögn Unu eru vörurnar hjá Borð fyrir tvo afar vinsælar til brúðargjafa og algengt er að lagðir séu inn brúðargjafalistar í verslunina. Þeir sem skrá gjafalista í Borð fyrir tvo fá inneign að verðmæti 10% af því sem keypt er af listanum.

Þessar vörur eru líka vinsælar til annars konar gjafa. En hvers konar borðbúnaður er vinsæll núna?

„Postulínsstellin eru mjög vinsæl og þar hef ég lagt áherslu á að hafa þau stílhrein og klassísk, eitthvað sem fólk sér fyrir sér að vilja eiga og nota áratugum saman. En svo eru líka aðrar og ólíkar línur að koma sterkar inn. Má þar nefna hollensku línuna PIP Studio þar sem lögð er áhersla á litagleði og skrautleika. Slagorð þeirra er „For Happy People“ og má fullyrða að maður verður glaður innan um þessa hluti. Úr allt annarri átt er síðan danska línan Bitz. Þær vörur eru ekki úr postulíni heldur úr leir. Þar er áhersla á svart, grátt og grænt. Líka svört hnífapör. Þetta er mun grófari hönnun og bæði vinsæl og flott sem slík,“ segir Una.

Það er óhætt að mæla með heimsókn í verslunina Borð fyrir tvo að Síðumúla 33. Það er gaman að skoða þann fallega borðbúnað sem þar er í boði. Verslunin er opin virka daga frá 11 til 18 og á laugardögum frá frá 12 til 16. Símanúmer er 568-2221.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea