Deig – Hráefni:
3/4 bolli mjólk
1 bréf þurrger
1/4 bolli sykur
1 tsk. salt
6 msk. smjör
2 stór egg
3 bollar hveiti
80 g hvítt súkkulaði (saxað)
Fylling – Hráefni:
100 g hvítt súkkulaði
150 g mjúkur rjómaostur
1/2 bolli sykur
2 msk. vanillusykur
2 tsk. kanill
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Setjið mjólk og smjör í skál og bræðið í örbylgjuofni. Leyfið blöndunni að kólna að stofuhita og blandið síðan þurrgeri, sykri og salti saman við. Leyfið þessu að standa í 5–10 mínútur. Blandið síðan eggjum og hveiti saman við og hnoðið vel. Bætið síðan söxuðu súkkulaðinu út í með sleif eða sleikju. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í eina klukkustund. Fletjið það síðan út og fyllið.
Nú er það fyllingin. Brytjið hvíta súkkulaðið í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur í senn þar til allt er bráðnað. Munið að hræra vel í súkkulaðinu eftir hvert holl. Blandið rjómaostinum saman við súkkulaðið. Blandið síðan sykri, vanillusykri og kanil vel saman í annarri skál. Smyrjið rjómaostablöndunni yfir útflatt deigið og sáldrið síðan sykrinum yfir. Rúllið deiginu upp og skerið í snúða. Ég fékk um það bil ellefu ágætlega stóra snúða úr þessari uppskrift. Smyrjið ágætlega stórt eldfast mót og raðið snúðunum í það. Setjið viskastykki yfir þá og leyfið þeim að hefast aftur á meðan þið hitið ofninn. Hitið ofninn í 170°C. Skellið snúðunum inn í ofn og bakið í 25 til 30 mínútur.
Snúðar – Hráefni:
1 bréf þurrger
1 bolli volg mjólk
4 msk. sykur
3 3/4 bolli hveiti
1 tsk. salt
2 egg (við stofuhita)
1 tsk. vanilludropar
90 g mjúkt smjör
Fylling – Hráefni:
1 pakki Royal-karamellubúðingur (Blandaður og kældur samkvæmt leiðbeiningum á pakka)
3/4 bolli púðursykur
1 egg
2 msk. vatn
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Blandið saman þurrgeri, mjólk og sykri saman í skál og leyfið þessu að hvíla í 5–10 mínútur, eða þar til blandan freyðir. Blandið hveiti og salti vel saman í skál og bætið því næst gerblöndunni, eggjum og vanilludropum saman við. Blandið saman í um 10 mínútur.
Blandið síðan smjörinu saman við og blandið saman í um 5 mínútur. Hnoðið deigið lítið eitt á borðfleti sem er dustaður með hveiti. Smyrjið smá olíu í skál, setjið deigið í skálina og hyljið með viskastykki. Leyfið deiginu að hefast á volgum stað í um klukkutíma.
Þá er það fyllingin. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið ágætlega stórt eldfast mót eða klæðið ofnplötu með smjörpappír. Fletjið deigið út og smyrjið búðingnum á það. Ég notaði ekki allan búðinginn, bara um 3/4 af blöndunni. Sáldrið síðan púðursykrinum yfir búðinginn. Rúllið deiginu út og skerið í snúða, um það bil 10 til 12 stykki. Raðið snúðunum í mótið eða á plötuna, setjið viskastykki yfir þá og leyfið að hefast í 5–10 mínútur í viðbót. Blandið saman eggi og vatni og penslið snúðana með eggjablöndunni. Bakið snúðana í 35 til 45 mínútur og fylgist vel með þeim. Leyfið þeim síðan að kólna aðeins áður en þið rífið þá í ykkur.
Deig – Hráefni:
1 pakki þurrger
1 1/2 bolli volgt vatn
2 msk. sykur
1 tsk. salt
6 msk. smjör (brætt)
1 egg
2 tsk. vanillusykur
4 bollar hveiti
Fylling – Hráefni:
1 bolli krækiber
1/2 bolli sulta
1 msk. rifinn sítrónubörkur
2 msk. smjör (brætt)
handfylli möndlur
Aðferð:
Byrjum á deiginu. Blandið geri, vatni, sykri og salti saman í skál og látið bíða í 10 mínútur, eða þar til blandan er byrjuð að freyða og tútna út. Blandið smjöri, eggi og vanillusykri síðan vel saman við. Blandið hveitinu smátt og smátt saman við, þar til deigið er hætt að vera klístrað. Kannski þurfið þið minna en fjóra bolla og kannski örlítið meira, eins og um það bil hálfan bolla í viðbót. Setjið deigið til hliðar á hlýjan stað, setjið hreint viskastykki yfir það og leyfið því að hvíla í um 10 mínútur.
Svo er það fyllingin. Blandið öllum hráefnum nema smjörinu og möndlunum vel saman í skál. Dustið smá hveiti á vinnuflötinn ykkar og fletjið deigið út í ferhyrning. Smyrjið smjörinu jafnt yfir deigið og dreifið síðan fyllingunni yfir. Rúllið deiginu upp og skerið í litla snúða. Takið til ofnskúffu og smyrjið botninn með smjöri. Raðið snúðunum á plötuna. Setjið viskastykki yfir snúðana og leyfið þeim að hefast á hlýjum stað í um 40 mínútur. Stillið ofninn á 175°C og stráið möndlubitum yfir snúðana. Bakið í 25–30 mínútur, eða þar til snúðarnir hafa tekið fallegan, gylltan lit.