fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
433Sport

Kolbeinn verður leikmaður Dortmund á næstu 24 klukkustundum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 19. ágúst 2019 09:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og við greindum frá í síðustu viku er Kolbeinn Birgir Finnsson að ganga í raðir Dortmun. Samkvæmt heimildum 433.is mun Kolbeinn skrifa undir á næstu 24 klukkustundum.

Félögin hafa verið að klára málin sín á milli síðustu daga.

Kolbeinn er fæddur árið 1999 en hann fagnar 20 ára afmæli sínu þann 25. ágúst næstkomandi. Kolbeinn hefur leikið með Fylki í Pepsi-Max deild karla í sumar – þar hefur hann spilað 13 leiki og skorað tvö mörk.

Hann er þó ekki í eigu Fylkis en félagið fékk hann lánaðan frá enska félaginu Brentford fyrr í sumar. Kolbeinn er þó uppalinn hjá Fylki en hann samdi við Groningen árið 2016 og fór síðar til Brentford.

Einnig á Kolbeinn að baki fjölmarga landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur tvisvar spilað fyrir A-landsliðið.

Það vekur talsverða athygli að leikmaður sem hefur ekki spilað fyrir aðallið Brentford, sé að ganga í raðir stórliðsins Dortmund. Þjálfarar og útsendarar Dortmund hafa hins vegar fylgst með Kolbeini frá því í febrúar.

Áhugi félagsins kviknaði þegar varalið Brentford og varalið Dortmund áttust við í febrúar, þar vann Dortmund 0-1 sigur. Kolbeinn lék allan leikinn með Brentford og var duglegur að búa til hluti fyrir samherja sína.

Kolbeinn ku gera þriggja ára samning við Dortmund en fyrst um sinn verður hann í varaliði félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United getur valið á milli þriggja leikmanna

United getur valið á milli þriggja leikmanna
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

United sagt setja meiri kraft í Watkins – Gengur lítið með Gyokeres og Mbeumo

United sagt setja meiri kraft í Watkins – Gengur lítið með Gyokeres og Mbeumo
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þorsteinn segir stress hafa lamað íslenska liðið – „Ég hef svosem ekki fylgst með umræðunni“

Þorsteinn segir stress hafa lamað íslenska liðið – „Ég hef svosem ekki fylgst með umræðunni“