Það er til tvenns konar fólk í heiminum. Fólk sem fær sér ananas á pítsu og fólk sem dæmir þá sem fá sér ananas á pítsu.
Þetta er mjög umdeilt málefni. En ef þú hélst að þetta væri það versta sem fólk setur á pítsu, þá erum við með fréttir fyrir þig.
Netverji sagði frá því á Reddit á dögunum að hann fær sér oft pítsu með vatnsmelónu. Já vatnsmelónu.
„Ég er hrifinn af vatnsmelónu á pítsu. Það var manað mig til að setja vatnsmelónu á pítsuna mína og ég var mjög hrifin af því. Þannig núna geri ég það þegar ég fæ mér pítsu,“ skrifaði maðurinn.
„Það sem ég geri er að ég læt pítsuna næstum því bakast alveg, ég tek hana út þegar nokkrar mínútur eru eftir og set vatnsmelónuna ofan á og síðan pítsuna aftur inn í ofn.“
Hann segir að fólk hefur sagt hann „klikkaðan“ fyrir að gera þetta og nýlega varð þetta að vandamáli
Hann bauð vini sínum í heimsókn í pítsu, og það er óhætt að segja að vinur hans var ekki hrifinn af því að fá pítsu með vatnsmelónu.
Þess vegna ákvað hann að leita til netverja og spyrja hvort að val hans á pítsaáleggi sé svona skrýtið eða hvort vinur hans sé full dramatískur.
Netverjar voru ekki með manninum í liði og sögðu hann „sjúkan“ fyrir að setja safaríka ávöxtinn á pítsu.
„Blaut pítsa? Þetta er ruglað.“
„Ég er hrifinn af ananas á pítsu en þetta er of langt gengið.“
Hins vegar voru nokkrir netverjar sem viðurkenndu að þeir hefðu áhuga að prófa þetta einn daginn.
Hvað segja lesendur? Vatnsmelóna á pítsu, já eða nei?