fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
FókusKynning

Ástjörn – sumarbúðir í meira en 70 ár

Kynning

Ástjörn er umlukin stórkostlegri náttúrufegurð

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 19. maí 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarbúðirnar Ástjörn í Kelduhverfi eru fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6–12 ára og 13–15 ára unglinga. Börnin koma alls staðar að af landinu. „Mörg börnin sem koma til okkar eiga foreldra sem voru í sumarbúðum hjá okkur þegar þeir voru börn og það er mjög ánægjulegt því það sýnir að foreldrarnir vilja veita börnunum sínum það sem þau sjálf upplifðu hér,“ segir Árni Hilmarsson forstöðumaður.

Hugmyndaflugið virkjað í leikjum og útiveru

Flest börnin koma í einn flokk, en sum dvelja lengur. Flokkarnir eru 8 og 10 dagar. Tjörnin og birkiskógurinn umhverfis sumarbúðirnar er endalaus uppspretta leikja og útiveru. Má nefna t.d. knattspyrnu- og körfuboltavöll, kvöldvökur, söng, Biblíutíma, föndur, alls kyns leiki og keppnir í skóginum og víðar, íþróttahús í næsta nágrenni, sund í tjörninni eða fjöruferð á góðviðrisdögum, hestaleigu og margt fleira. Bátar eru af ýmsum gerðum: Árabátar, kajakar, kanóar, hjólabátar og skútur. „Hjá okkur er stærsti bátafloti í sumarbúðum á Íslandi, en við erum með um 30 báta af öllum gerðum, meira að segja svokallaða sökkvibáta!“ segir Árni, en það eru bátar sem börnin mega sökkva á góðviðrisdögum þegar synt er í tjörninni. Hornsílaveiðar eru sívinsælar.

Ástjörn hefur þá sérstöðu að um er að ræða einu sumarbúðirnar á Íslandi sem eru í þjóðgarði, Vatnajökulsþjóðgarði, rétt hjá Ásbyrgi í Kelduhverfi. Einnig hefur Ástjörn þá sérstöðu að þvottahús er á staðnum þar sem allt er þvegið af börnunum og fara þau því heim með hrein föt í töskunni, mörgum foreldrum til mikillar ánægju.

Skráningu og upplýsingar er hægt að nálgast í síma 462-3980, á heimasíðunni www.astjorn.is og einnig á facebook.com/astjorn. Einnig er hægt að sjá margar myndir þar, og sömuleiðis myndbönd á youtube.com/astjorn

Netfang er astjorn@astjorn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea