fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
FókusKynning

Byltingarkenndur grunnskóli

Kynning

Einstaklingsmiðað nám hjá NÚ fyrir heilbrigðar sálir í hraustum líkama

Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 22. maí 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

NÚ er byltingarkenndur grunnskóli fyrir alla nemendur í 8.–10. bekk sem hafa einlægan áhuga á íþróttum og stunda þær sér til gagns og gamans, óháð getu. Hjá NÚ er sérstök áhersla lögð á íþróttir, hreyfingu og heilsu nemandans, þar sem honum er haldið líkamlega virkum gegnum skóladaginn og kyrrseta takmörkuð með ýmsum leiðum. Í NÚ er í notkun kerfi sem kallast vendinám og greinir skólann enn fremur frá hefðbundnum grunnskólum. Kennt er sömuleiðis í þriggja vikna lotum þar sem 2–3 námsfög eru tekin fyrir. Skólinn er viðurkenndur af Menntamálastofnun, starfar samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og lýtur lögum og reglugerðum um íslenska grunnskóla.

Kristján Ómar, Sigríður og Gísli. Flottir kennarar.
Kristján Ómar, Sigríður og Gísli. Flottir kennarar.

Sjálfstæðir og heilbrigðir nemendur

Námið í NÚ er sérstaklega hannað til þess að koma til móts við þarfir nemenda sem stunda íþróttir af miklum móð. Allir dagar í NÚ hefjast í dagsbirtu með svokallaðri NÚveru, þar sem nemendur og starfsmenn horfa inn á við, læra öndun, fara yfir markmið/gildi og gera léttar og uppbyggjandi líkamsæfingar. Þá er nemendum kennt að setja sér markmið og fylgja þeim eftir, sem er eitthvað sem getur reynst íþróttamönnum og öðru afreksfólki afar dýrmætt. Námið er einstaklingsmiðað og persónubundið og hentar nemandanum fyrst og fremst. Þá er stefna NÚ að efla sjálfræði nemenda og sjálfstæði í vinnubrögðum. Nemendur bera þá aukna ábyrgð á eigin námi og er námsumhverfi nemenda að stærstum hluta rafrænt.

Hvað er vendinám?

Um er að ræða afar nútímalega kennsluhætti þar sem vendinám einblínir fyrst og fremst á einstaklingsbundnar þarfir nemandans. Vendinám fer þannig fram að nemandi les eða horfir á kennsluefni frá kennara á netinu, þegar honum hentar og eins oft og hann vill, til að öðlast skilning efninu. Í skólastofunni fer svo fram úrvinnsla námsefnisins. Kröfur eru gerðar til nemanda um að vera lausnamiðaður, starfa í hópum og vinna raunverkefni.

Það eru allir með í NÚ

Félagslífið í NÚ er að sama skapi fjölbreytt og skemmtilegt. Árlegar uppákomur eru m.a. óvissuferð að hausti, vorferð, þorrablót, spurningakeppni grunnskólanna, skólahreysti og árshátíðin. Auk þess eru ýmsar aðrar skemmtanir yfir skólaárið. NÚ hefur jafnframt þá stefnu að taka þátt í öllum félagslegum viðburðum og keppnum sem í boði eru hverju sinni og allir nemendur, sem gefa kost á sér til að starfa í félagsmálum, fá tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum.

NÚ er til húsa að Flatahrauni 3, 220 Hafnarfirði.
Email: info@framsynmenntun.is
Sími: 695-5415
Opið fyrir umsóknir til 30. júní.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu NÚ: framsynmenntun.is og á Facebook-síðunni: NÚ – Framsýn menntun á grunnskólastigi..

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea