fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

10 góð ráð til betra lífs

Lagaðu til í sálinni og láttu þér líða betur – Svona geturðu gert það

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 2. apríl 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við lifum í þjóðfélagi hraða og streitu og höfum oft lítinn tíma til að hugsa og staldra við. Hér koma nokkur góð ráð til að laga til í sálinni og láta sér líða betur.

Hægðu á

Gerðu stöðugt hvað þú getur til að hægja á hugsunum þínum og hreyfa þig hægt og rólega. Samtímis er skynsamlegt að gera minni kröfur til sín. Fækkaðu verkum þínum og láttu sum hafa forgang. Taktu þér nokkur stutt hvíldarhlé yfir daginn. Gefðu þér tíma til að stunda tómstundir sem þér finnst gaman að og hafa góð áhrif á þig; það þarf ekki að vera flóknara en svo að fara í göngutúr eða baka köku.

Vertu ákveðin/n

Horfstu í augu við vandamál þin og vittu til, þau minnka og hverfa jafnvel. Þú þarft viljastyrk til að framkvæma þetta og vera ákveðin/n. Viljasterkt og ákveðið fólk fer ekki í launkofa með hvað það hugsar og hvaða tilfinningar það ber í brjósti. Það getur sagt ,,nei“. Um leið og það lætur í ljós þarfir sínar og vandamál horfist það í augu við átök, á ákveðinn og kurteislegan hátt, það virðir rétt annarra og gerir kröfur til að þeirra réttur sé líka virtur.

Fyrirgefðu sjálfum þér og öðrum

Fyrirgefningin er ein mikilvægasta dyggð mannsins. Það er nauðsynlegt að vera ekki stöðugt að erfa allt mögulegt við annað fólk. Ef þú kannt ekki að fyrirgefa bitnar það aðeins á þér. Hitt er þó kannski enn verra og erfiðara að kunna ekki að fyrirgefa sjálfum sér. Í þessu sambandi er hægt að benda á að ef þú hefur ekki fyrirgefið þér eitthvað sem henti í fortíðinni og ert sífellt að velta þér upp úr því hefurðu þegar tekið út svo mikla þjáningu að það er orðið meira en næg refsing fyrir mistök þín.

Lifðu í núinu

Fjöldi fólks frestar hamingjunni. Það puðar og puðar og lifir skítalífi í þeirri von að þegar einhverju marki sé náð og þetta eða hitt gerist verði það hamingjusamt. En hvað um daginn í dag, núið? Við vitum aldrei hvað við fáum langan tíma í þessu lífi. Hví þá að lifa eins og við séum á einhverri leikæfingu í stað þess að njóta sjálfs leiksins, hvers augnabliks lífsins? Líttu á hvern dag sem heilt líf í sjálfu sér. Lifnaðu við að morgni og kveddu síðan að kveldi. Núið er allt sem þú átt, fortíðin er liðin og framtíðin ókomin.

Skiptu um félagsskap

Við erum öll undir áhrifum fólksins í kringum okkur, sem við umgöngumst daglega. Vinátta við jákvætt fólk getur kennt okkur að vera jákvæð. Maður getur smitast af vináttu við neikvætt fólk og orðið neikvæður. Gerðu þér grein fyrir því hvað þú vilt fá út úr lífinu og veldu þér síðan vini í samræmi við það.

Hláturinn lengir lífið

Fólk hefur jafnvel sigrast á sjúkdómum með því aðallega að hlæja. Það leikur enginn vafi á að hlátur hjálpar manni að losna við neikvæðar tilfinningar. Horfðu á gamanmyndir og lestu fyndnar bækur, hafðu augu og eyru opin fyrir öllu því skemmtilega í kringum þig.

Gættu að mataræðinu

Borðaðu næringarríkan mat, sambland af ferskum ávöxtum, grænmeti, hnetum, kolvetni, fiski og fuglakjöti. Slíkt mataræði í hófi styrkir líkamann gegn álagi. Matur sem inniheldur C-vítamín, E-vítamín, magnesíum, kalí, kalk, zink, og fosfór er talinn koma að bestum notum við streitu. Það er gagnlegt að gera sér grein fyrir hvort og hvernig mataræðið hefur áhrif á skap þitt. Reyndu að taka eftir því hvernig mismunandi fæða getur haft áhrif á líðan þína. Ekki breyta skyndilega um mataræði heldur þreifaðu þig áfram og skiptu smám saman út þeim mat sem þér líður ekki vel af.

Þjálfaðu líkama þinn mátulega

Þú losar um spennu með því að stunda líkamsrækt af einhverju tagi. Þegar þú gerir æfingar losna út í blóðrásina endorfín „sæluefnin“ sem eru hin eðlilegu vellíðunarhormón líkamans og skýra vellíðunartilfinninguna sem fólk finnur eftir leikfimi. Farðu hægt af stað og ráðfærðu þig við fagfólk til að ná sem bestum árangri.

Farðu í nudd

Með nuddi má slaka á spenntum vöðvum, draga úr verkjum og sársauka og bæta blóðrásina. Láttu við og við eftir þér að fara í nudd hjá fagmanni ef þú hefur efni á því. Þess á milli gæti maki eða vinur lagt þér lið og lært að nudda þig á réttan hátt.

Hugaðu að líkamsstellingu og svip

Líkamsstelling og svipur fólks geta haft bein áhrif á líðan þess og skap. Réttu úr bakinu og vertu upplitsdjarfur og brostu við lífinu.

Grein birtist fyrst á doktor.is

Heimildir:

Elaine Sheehan: Kvíði, fælni og bræðiköst, Sjálfshjálp og leiðbeiningar fyrir fjölskyldu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum