fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
FókusKynning

Sérhannaðar gæðavörur til hótela og gististaða

Kynning

Scintilla, Skipholti 25

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 6. apríl 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Scintilla er íslenskt textílhönnunarfyrirtæki sem sérhannar og framleiðir vörur fyrir hótel, gistiheimili, líkamsræktarstöðvar og heilsulindir. Má þar nefna rúmfatnað, handklæði, sloppa, teppi og púða. Falleg hönnun, gæði, ending og framúrskarandi þjónusta eru helstu áherslur fyrirtækisins á þessu sviði ásamt því að bjóða upp á lífrænan textíl.

„Okkar sérstaða á þessum markaði er sú að við erum hönnunarfyrirtæki og við hönnum allar vörurnar okkar sjálf. Við erum ekki heildsalar að flytja inn fjöldaframleidda staðlaða vöru. Við leggjum áherslu á hönnun og fagurfræði auk þess að hugsa um gæði, endingu og siðferði við framleiðslu. Við bjóðum okkar viðskiptavinum upp á að sérhanna fyrir þá þeim að kostnaðarlausu gegn því að þeir kaupi vörurnar af okkur. Íslenskur hóteliðnaður er kominn á þann stað núna að hver og einn aðili þarf að skerpa á sinni sérstöðu og hugsa um gæði. Það má hafa í huga að það er hægt að uppfæra herbergi fyrir lítinn pening með því einu að hafa falleg og vönduð rúmföt,“ segir Linda Björg Árnadóttir hjá Scintilla.

Í fyrirtækinu er 30 ára reynsla af hönnun og framleiðslu á textíl. Meðal viðskiptavina eru ION Hotel á Þingvöllum, Bláa lónið, Laugar og Hótel Kefalvík.

„Við getum sérframleitt vörur fyrir minni aðila í litlu magni sem auðvelt er síðan að endurpanta. Við getum veitt ráðgjöf varðandi hönnun og stíl og framleitt vörur með sérhönnuðum munstrum, lit eða merki viðskiptavinarins án þess að það komi til aukakostnaður”.

Scintilla er húsa að Skipholti 25 í Reykjavík. Þar eru skrifstofa, sýningarrými og lítil verslun sem er opin virka daga frá kl. 10 til 18. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 562 2659 auk þess sem senda má fyrirspurnir á netfangið s@scintillalimited.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea