fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
FókusKynning

Heitir og pottar og saunavörur: Hágæði og hagstætt verð

Kynning

Goddi, Auðbrekku 19, Kópavogi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 25. apríl 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Goddi, Auðbrekku 19 Kópavogi, er með afar fjölbreytt vöruúrval og er meðal annars framarlega í sölu á heitum pottum, lokum yfir heita potta, infrarauðum saunaklefum og hitaklefum, auk hefðbundinna gufubaða og ýmiss konar búnaðar þeim tengdum.

Goddi selur heita potta af tegundunum Hydro og Ocean. Þetta eru afar vandaðir pottar með loki úr sterku leðurlíki og hlífin er gerð fyrir íslenskt veðurfar. Verð á potti með loki og tröppu er aðeins 780.000 krónur.
Einnig eru í boði lok á heita potta í þremur litum og stærðunum 200×200 cm, 208×208 cm og 213×213 cm á aðeins 69.500 krónur – lok sem henta einstaklega vel fyrir íslenska veðráttu. Lokin eru samanbrjótanleg í miðju, með góðum festingum og svuntu, eru létt og meðfærileg.

Infrarauðir saunaklefar eru áhugaverð uppfinning en Goddi býður þessa klefa á mjög hagstæðu verði, eða frá rúmlega 200 þúsund krónum. Hægt er að fá klefa sem eru frá tveggja manna upp í fjögurra manna. Infrarauðir geislar, eða IR-greislar, hafa ýmsa kosti fyrir heilsu manna, til dæmis örva þeir líkamann sem getur brennt allt að 600 hitaeiningum á 30 mínútum og fólk svitnar þrefalt meira en í hefðbundnu saunabaði. IR-geislar örva æðakerfið og auka blóðflæði, víkka æðar, lækka blóðþrýsting og fá hjartað til að slá hraðar, sem styrkir og eflir hjartavöðvann. IR-geislar eru mikið notaðir til lækninga, við tognun, stirðleika í liðum og öðrum vöðvaverkjum, og þeir fjarlægja mjólkursýru og koldíoxíð úr vöðvum.

Ítarlegri fróðleik um IR-geisla og IR-saunabaðklefa má finna á heimasíðu Godda, goddi.is

Goddi býður líka upp á mikið úrval af hefðbundnum saunaböðum frá finnska gæðaframleiðandanum Harvia. Er þar bæði um að ræða heilu gufuböðin og einstaka hluta þeirra og fylgihluti. Gott er að fá ráðgjöf á staðnum um hvað til þarf og hvaða kostir séu hagstæðastir fyrir hvern og einn viðskiptavin.

Goddi
Auðbrekku 19
200 Kópavogur
Símar: 544-5550 / 822-4150
goddi@goddi.is
Goddi.is
Goddi er á Facebook

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea