fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
FókusKynning

NormX: Heitir pottar – íslensk framleiðsla í yfir 30 ár

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 26. apríl 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

NormX er rúmlega þrjátíu ára gamalt íslenskt framleiðslufyrirtæki sem framleiðir heita potta úr hverfisteyptu plasti í plastverksmiðju sem staðsett er í Vogum á Vatnsleysuströnd. Að sögn Kjartans Ragnarssonar er NormX með verslun og glæsilegan sýningarsal að Auðbrekku 6 í Kópavogi. „Í salnum okkar eru til sýnis ýmsar vörur sem við framleiðum og seljum. Við höfum sérhæft okkur í heitum pottum en jafnframt teljum við mjög mikilvægt að vera með á boðstólum allar vörur sem tengjast pottunum, líkt og hitastýringar, nokkrar gerðir af lokum, nuddbúnað og ýmsa fylgihluti.“

Besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð

„Við stöndum við þau orð að heitu pottarnir frá NormX séu besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð,“ segir Kjartan. „Pottarnir sem við framleiðum eru einstaklega sterkir og þola vel fjölbreytileika íslenskrar veðráttu. Þeir eru einkar auðveldir í þrifum enda framleiddir úr gegnheilu Polyethylene-plasti með UV-vörn (sólarvörn) og verjast því sólarljósi vel. Allir heitir pottar frá NormX eru endurvinnanlegir. Allar gerðir af pottum er hægt að fá í mismunandi litum.

Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að hér er langoftast lítið sem ekkert mál að nálgast heitt vatn á mjög lágu verði og hönnun heitu pottanna okkar hjá NormX taka mið af því og taka frekar mikið vatn og eru djúpir. Í Snorralauginni (sem er vinsælasti potturinn okkar) eru t.d. 66 sentimetrar frá sæti og upp á brún. Þá ætti að flæða vel yfir axlir á flestum. Það er því svo sannarlega leikur einn að njóta vellíðunar í pottinum hvort sem sólin skín glatt að sumri til eða kuldi og snjór sé í kortunum.“

Sjáum um allt samkvæmt óskum viðskiptavina

„Afgreiðslutími NormeX pottanna er skammur þar sem algengustu og vinsælustu gerðirnar eru alltaf til á lager og aðrar getum við framleitt með litlum fyrirvara. Við seljum að sama skapi allar lagnir sem til þarf, auk nuddkerfa og ljósabúnaðar, allt eftir óskum viðskiptavina. Starfsmenn okkar geta einnig séð um ísetningu og tengingar. Við leggjum metnað okkar í að viðskiptavinir okkar séu ánægðir alla leið,“ segir Kjartan að lokum.

NormX
Auðbrekku 6
200 Kópavogur
Sími: 565-8899.
Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10.00–18:00, föstudaga, opið 10.00–17.00.
www.normx.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea