fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Aldrei hafa fleiri Íslendingar viljað fá bjór og léttvín í matvöruverslanir – Stendur þó ekki til hjá stjórnvöldum

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 4. júní 2019 14:48

Nú má skála í Súdan. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fleiri Íslendingar eru hlynntir en andvígir sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum. Aldrei hafa fleiri verið hlynntir sölu á bjór í matvöruverslunum frá því að Maskína hóf mælingar á þessu árið 2014.

Þess skal getið að ekki stendur til hjá yfirvöldum að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum, ekkert frumvarp bíður afgreiðslu á Alþingi sem hljóðar svo. Hinsvegar hefur Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, lagt fram frumvarp um að afnema einkaleyfi ríkisins á smásölu áfengis og að einkaaðilum verði heimiluð slík sala að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Frumvarpið gerir ráð fyrir að almennt verði heimilt að selja áfengi í smásölu í sérverslunum með mat- og drykkjarvörur en ekki stórmörkuðum og matvöruverslunum,

líkt og segir í greinagerð frumvarpsins.

Rúmlega 44% eru hlynnt sölu léttvíns í matvöruverslunum og um 42% andvíg (það sem á vantar 100% eru þeir sem eru beggja blands). Afstaða til sölu á bjór í matvöruverslunum er mjög svipuð afstöðu til sölu á léttvíni. Á bilinu 44-45% er hlynnt sölu á bjór og um 41% er andvígt. Töluvert meiri andstaða er gegn sölu á sterku víni í matvöruverslunum. Tæplega 17% Íslendinga eru hlynnt sölu á sterku víni í matvöruverslunum en á milli 67% og 68% er andvíg því.

Í öllum tilfellum eru karlar hlynntari sölu áfengis í matvöruverslunum en konur. Kynjamunurinn er sterkastur í viðhorfi til sölu á sterku víni. Tæplega 11% kvenna eru hlynnt því, en á bilinu 22-23% karla.

Því yngri sem svarendur eru þeim mun hlynntari eru þeir sölu á áfengi í matvöruverslunum. Þeir sem eru á aldrinum 18 til 29 ára eru í öllum tilfellum hlynntastir sölunni, en þeir sem eru 60 ára og eldri eru í öllum tilfellum andvígastir.

Svarendur voru 824 talsins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem er dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 14. til 27. maí 2019.

Skýrsluna í PDF formi má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum