fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
FókusKynning

Blautar brækur

Þvagleki getur verið hvimleitt vandamál – Grindarbotnsæfingar gagnlegar

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 11. mars 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teitur Guðmundsson læknir skrifar:

Mamman kallar á 10 ára dóttur sína sem hoppar á trampólíninu að koma nú inn að borða, „meira hvað barnið getur skoppað þetta fram og til baka án þess að lenda í vandræðum.“ Ekki myndi hvarfla að mömmunni að gera þetta í dag, hún myndi örugglega missa það í brækurnar við þessa áreynslu. Reyndar hefur þetta verið allt hið ómögulegasta mál síðustu árin, hún hefur varla mátt hnerra eða hlæja af hjartans lyst af ótta við það sama. Kaupandi innlegg til að vera viss, þrátt fyrir að hún sé ekki á blæðingum. Sérstaklega í ræktinni er þetta hvimleitt því hún verður að vera búin að tæma blöðruna áður en hún fer að djöflast með hinum stelpunum, annars er voðinn vís.

Hvimleitt vandamál

Þarna er um að ræða eitt birtingarform þvagleka sem er algengt hjá konum, sérstaklega eftir barnsburð eða í kjölfar tíðahvarfa með tilheyrandi breytingum í slímhúð. Þetta er sérlega hvimleitt vandamál og oftsinnis lítið rætt, því miður, enda vandræðalegt að geta ekki haldið þvagi. Flestir tengja það við ungbörn með bleyju eða eldra fólk sem hefur misst stjórn, síður við unga og hrausta konu. Þvagleki er tvisvar sinnum algengari að jafnaði hjá konum en körlum og byggir það töluvert á líffærafræði og byggingu grindarbotnsins. Það eru hins vegar margir karlar sem finna fyrir slíkum einkennum einnig, þá sérstaklega þeir sem glíma við blöðruhálskirtilsvanda og hafa farið í aðgerð.

Margir áhættuþættir

Við þekkjum marga sjúkdóma sem hafa áhrif á starfsemi þvagblöðrunnar og geta leitt til þvagleka, en einna helst eru það taugasjúkdómar eins og Parkinson, Alzheimer, MS-sjúkdómur, heilaáföll, mænuskaði og sykursýki. Ekki má gleyma einfaldari vandamálum samanber þvagfærasýkingar og hægðatregðu auk neyslu- og hegðunartengdra atriða sem geta ýtt undir þvaglosun og leka. Áfengi, of mikil vökvainntaka, reykingar, offita, koffein, ertandi efni fyrir blöðruna eins og krydd, sykur og sýrur auk lyfja að sjálfsögðu geta haft veruleg áhrif og ýtt undir þann vanda sem fyrir er eða jafnvel skapað hann.

Geta valdið einangrun

Þvagleka geta fylgt ýmis vandamál, mörg þeirra vegna ertandi áhrifa þvagsins á húðina, aukinnar tíðni þvagfærasýkinga en síðast en ekki síst hinna sálfélagslegu þátta sem geta valdið einangrun og haft veruleg áhrif á líf og líðan viðkomandi. Það er þekkt að þvagleki getur dregið úr áhuga á líkamsrækt og þátttöku í félagslífi, truflað svefn og einbeitingu auk þess að hafa áhrif á nánd og samlíf af ótta við að missa þvag. Það er því ljóst að til mikils er að vinna og reyna að leysa þennan vanda sem oftar en ekki er haldið leyndum og ætti þvert á móti að hvetja bæði konur og karla til að ræða þessi vandamál við lækni eða annan fagaðila.

„Vitundarvakningar er þörf að mínu viti, því leitun er að jafn einföldu og ódýru úrræði sem getur haft jafn afgerandi áhrif á líf og líðan einstaklinga og grindarbotnsæfingar.“

Stundum þarf aðgerð

Nauðsynlegt er að fá rétta greiningu og aðstoð því í mörgum tilvikum er hægt að meðhöndla eða jafnvel lækna þvaglekann, en honum er skipt upp í nokkur form eftir alvarleika hans og tekur meðferðin mið af því. Í sumum tilvikum duga einfaldar æfingar, en stundum þarf aðgerð og lyfjameðferð til að ná viðunandi árangri. Konur og karlar ættu að ræða þetta opinskátt og læknar þurfa að vera meðvitaðir, en þar sem vandinn er bæði vangreindur og sjaldan ræddur eru tölur nokkuð á reiki með tíðni. Talið er að allt að 65% kvenna og allt að 40% karla finni fyrir slíkum einkennum á lífsleiðinni og augljóslega eru hæstu tölurnar að eiga við elsta hópinn. Þá er talið að minna en helmingur þeirra sem glíma við slíkan vanda leiti sér aðstoðar og einnig að stór hópur viðurkenni hann alls ekki.

Grindarbotnsæfingar gagnlegar

Þá er einnig áhugavert að vita að einfaldasta leiðin til að hindra eða bæta þvagleka eru grindarbotnsæfingar, en fæstar konur gera þær reglubundið, hvað þá karlar. Rannsóknir hafa sýnt að allt að þriðjungur þeirra sem þó gera slíkar æfingar gera þær vitlaust, svo við eigum enn langt í land að því er virðist og er mikilvægt að kenna þær. Vitundarvakningar er þörf að mínu viti, því leitun er að jafn einföldu og ódýru úrræði sem getur haft jafn afgerandi áhrif á líf og líðan einstaklinga og grindarbotnsæfingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum