Búið er að birta nafn mannsins sem varð þremur að bana við breska þinghúsið í London í gær áður en hann stakk lögregluþjón til bana. Hann hét Khalid Masood og var 52 ára Breti. Þetta kemur fram á vef BBC og Sky News. Masood hafði verið undir eftirliti bresku leyniþjónustunnar MI5 fyrir nokkrum árum vegna öfgafullra skoðana og var jafnframt á sakaskrá,meðal annars fyrir líkamsárásir og vopnaburð.
Líkt og fram kom í frétt DV hafa hryðjuverkasamtökin ISIS lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í London í gær. Frá þessu greinir AP-fréttastofan sem vísar í fréttaveitu samtakanna, Aaamaq, þess efnis að árásarmaðurinn hafi verið liðsmaður samtakanna.
Masood varð þremur að bana og særði 29 þegar hann ók bílaleigubíl á hóp fólks á Westminster-brúnni áður en hann stakk lögregluþjón til bana. Sjö einstaklingar eru enn alvarlega særðir.
Masood var fæddur í Kent í Bretlandi en hann var fyrst ákærður árið 1983, fyrir skemmdarverk. Þrátt fyrir að hafa áður verið undir eftirliti þá var hann ekki á radar bresku leyniþjónustunnar. Lögreglunni bárust því engar vísbendingar áður en Masood lét til skarar skríða í gær. Fram kemur í yfirlýsingu að „engar upplýsingar hafi verið uppi um áætlun hans um hryðjuverkaárás“.