
Sá orðrómur er hávær á fjármálamarkaði að Fossar markaðir hf. hafi landað samningi við Kaupþing um að annast útboð í haust þegar Arion banki verður, að öllum líkindum, skráður á markað. Talið er að Kaupþing muni losa um allt að 36 prósenta hlut í bankanum á almennum markaði en fram hefur komið að fyrirtækið sé undir undir talsverðum þrýstingi frá Fjármálaeftirlitinu til þess. Ef satt reynist er um gríðarlegan ávinning að ræða fyrir Fossa enda munu þóknanatekjur hlaupa á hundruðum milljóna króna.