fbpx
Laugardagur 13.september 2025
FókusKynning

Kaffihúsið sem alltaf vantaði í Breiðholt

Kynning

Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 7. mars 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamla kaffihúsið er hlýlegur staður í Drafnarfelli í Breiðholti. Unnur Arna Sigurðardóttir, einn eigenda þess, er ákaflega ánægð með frábærar móttökur viðskiptavina. „Það var brýn þörf á að fá gott kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið og rólegt svæði. Hér býr margt fólk og alls ekki allir sem vilja fara niður í bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla og finnst notalegt að setjast inn hjá okkur,“ segir hún. „Það hefur vakið mikla lukku að við bjóðum einnig upp á mat og við erum t.d. alltaf með tvær mismunandi gerðir af súpum í hádeginu og rétt dagsins. Þannig að það má segja að við séum nokkur konar bistró. Hádegismatartíminn stendur yfir frá kl. 12.00–14.00.“

Ljúffengar steikur

Unnur segir að matseðillinn sé ekki stór en sætur og með sérvöldum, bragðgóðum réttum. „Gestir hafa verið afar hrifnir af eðalbrauðunum okkar en þau er tvisvar sinnum stærri en hefðbundin rúnstykki og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða mínútusteik.

Allan daginn eru síðan á boðstólum ljúffengar steikur; nautasteik með bearnaise- eða piparsósu og fær fólk sér þá gjarnan rauðvínsglas með máltíðinni og röltir svo satt og sátt heim til sín, í göngufæri.

Gamla kaffihúsið okkar er heimilislegt og fólki finnst þægilegt að setjast niður hér og lesa eða spjalla við vinalegan þjóninn. Við erum með bókahillu sem fólk getur seilst í og lesið. Fólk getur bæði tekið bækur og gefið þær sem það hefur lesið og vill að aðrir njóti.“

Kökuhlaðborð á sunnudögum

„Á sunnudögum er alltaf kökuhlaðborð hjá okkur upp á gamla móðinn á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar aðeins 2.000 krónur og er kaffi þá innifalið. Þetta er nokkuð sem fólk hefur saknað og þykir dásamlegt að geta tekið upp þennan skemmtilega gamla sið að fara í kaffihlaðborð á sunnudagseftirmiðdögum,“ segir Unnur og brosir hlýlega um leið og hún kemur því á framfæri að hún þakki innilega fyrir frábærar móttökur gesta.

Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík. Sími: 511-1180.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri