fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433

Kjartan Henry: Eins og annar heimur

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 24. mars 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann er mjög veikur. Það er ekkert öðruvísi. Hann er heppinn að vera á lífi.“ Þetta segir Drífa Alfreðsdóttir, sem er móðir piltsins sem lenti í alvarlegum árekstri á Reykjanesbrautinni, skammt austan við Kaplakrika, síðastliðinn mánudagsmorgun. Á miðvikudagskvöld birti Drífa mynd af bílnum sem sonur hennar var í þegar slysið varð. Sindri sveigði yfir á rangan vegarhelming eftir að bíll keyrði í veg fyrir hann.

Líkt og sjá má á myndinni hér til hliðar þá er hann gjörónýtur.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn mánudag var óskað eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut skammt austan við Kaplakrika, móts við Setbergið.

Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 10.20 síðastliðinn mánudag, 20. mars. Þar rákust saman Toyota Yaris, vínrauð að lit, sem ekið var vestur Reykjanesbraut og Peugeot Partner, hvít að lit, sem ekið var austur Reykjanesbraut. Yaris-bifreiðin fór yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að árekstur varð og hafnaði hún utan vegar.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið 0140@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Drífa vill með myndbirtingunni ítreka beiðni lögreglunnar um að þeir sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu gefi sig fram við lögreglu.

Við myndina skrifar Drífa: „Við biðjum um aðstoð og deilingu. Finnum þann sem keyrði í veg fyrir Sindra. Ég efast um að sá hinn sami viti hvað gerðist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“