Bandaríska dagblaðið Capital Gazette vann sérstök heiðursverðlaun Pulitzer fyrir umfjöllun sína um skotárás sem átti sér stað á fréttastofunni þeirra.
Starfsmenn dagblaðsins greindu frá atburðum skotárásarinnar í rauntíma á samfélagsmiðlinum Twitter. Árásin var framin þann 28. júní í fyrra
Fimm starfsmenn létust í árásinni, þau John McNamara, Wendi Winters, Rebecca Smith, Gerald Fischman og Rob Hiaasen.
Þrátt fyrir þetta létu starfsmenn Capital Gazette ekki kyrrt liggja en þeir gáfu út dagblað daginn eftir skotárásina. Dagblaðið innihélt umfjöllunina um árásina sem vann Pulitzer-verðlaunin.
Starfsmenn Capital Gazette fögnuðu ekki heldur féllust þau í faðma til að minnast þeirra 5 starfsmanna sem létu lífið í skotárásinni.
Skotárásin er ein mannskæðasta árás á fjölmiðla í sögu Bandaríkjanna.