fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433

Helgi Kolviðsson: Vitum hvernig Lippi vill spila

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. febrúar 2017 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tækniskólinn og Samtök iðnaðarins hafa, í samstarfi við alla iðn- og verkmenntaskóla á landinu, hrundið af stað átaki sem hefur það markmið að brjóta niður úreltar hugmyndir þess efnis að ákveðin störf henti aðeins konum á meðan önnur henti körlum.

Átakið, sem ber yfirskriftina #kvennastarf, vísar til „mýtu sem flestir landsmenn kannast við, mýtunnar um að eðlilegt sé að starfsgreinar flokkist í kvennastörf og karlastörf,“ segir í tilkynningu vegna átaksins.

„Velt er upp spurningunni; hvaða störf eru kvennastörf? Svarið er að öll störf eru kvennastörf. Hefðbundin verkaskipting kynjanna er orðin úrelt og á ekki lengur við í nútímasamfélagi. Konur eiga að geta starfað við það sem þeim sýnist og það sama gildir um karlmenn.“

Í tilkynningunni er bent á að iðn- og verkgreinar séu enn karllægustu starfsgreinar atvinnulífsins og þar ríki mikil skortur á fagmenntuðu fólki. „Ef rúmlega helmingur þjóðarinnar, konur, útilokar verk-, tækni- og iðngreinar vegna úreltra staðalímynda þá er það kannski ekki að undra.“

Átakið hófst á birtingu ljósmynda, sem prýða nú mörg strætisvagnaskýli á höfuðborgarsvæðinu. Myndirnar sýna stelpur sem eru nemendur í viðkomandi iðngrein og er ætlað að varpa ljósi á glæsilegar fyrirmyndir sem stunda nám eða vinna við þessi störf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi
433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal