

Í austurhluta Reykjavíkur þurftu lögreglumenn að sinna verkefni í gærkvöldi en þar hafði fyrrum maki komið á heimili og neitaði að yfirgefa það. Hann hafði þó yfirgefði húsið þegar lögreglan kom á vettvang.
Einnig þurfti lögreglan að koma að máli í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þar sem hafði komið til handalögmála á milli sambýlisfólks. Meintur gerandi í málinu var handtekinn og fluttur á brott. Fulltrúar barnaverndarnefndar og félagsþjónustu borgarinnar komu á vettvang til að aðstoða þolandann og börn fólksins.
Þrír ökumenn voru handteknir í nótt grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna.
Í gærkvöldi var fjórum mönnum vísað úr þvottahúsi í sameign fjölbýlishúss í miðborginni. Þar höfðu þeir hreiðrað um sig. Þeim var bent á úrræði Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa.
Á fjórða tímanum í nótt var ökumaður handtekinn í austurborginni en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Þegar verið var að handtaka manninn sáu lögreglumenn bifreið skammt frá en lýst hafði verið eftir þeirri bifreið þar sem henni hafði verið stolið. Þrír voru handteknir vegna gruns um aðild að þjófnaðinum og bifreiðin var tekin í vörslu lögreglunnar.
Lögreglan sinnti nokkrum útköllum í nótt vegna hávaða frá samkvæmum sem truflaði svefn margra.