fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Samkomulag Íslands og Bretlands á sviði öryggismála undirritað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 26. mars 2019 17:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi sínum í Lundúnum í dag undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, samkomulag milli Íslands og Bretlands um að efla tvíhliða samstarf ríkjanna í varnar- og öryggismálum.

Um er að ræða uppfærslu af samkomulagi frá árinu 2008 sem nær nú til fleiri samstarfsþátta en áður í anda þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. Samkomulagið tekur þannig bæði til þátta er varða varnar- og öryggismál sem og löggæslumála. Þar má t.a.m. nefna eftirlit í lofti og á sjó, hryðjuverkavarnir, skipulagða glæpastarfsemi, nútíma þrælahald, netöryggi og leit og björgun.

„Umhverfi öryggismála hefur tekið stakkaskiptum á umliðnum árum og því ánægjulegt að ljúka gerð samkomulags sem tekur mið af því. Ísland og Bretland eru náin samstarfsríki, meðal annars innan Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna, og deila hagsmunum víða, þ.m.t. á norðanverðu Atlantshafi. Við erum staðráðin í að takast á við nýjar áskoranir í sameiningu og stuðla að auknu öryggi og stöðugleika í okkar heimshluta. Þá er afar gott, á þessum tímapunkti, að árétta enn frekar þau jákvæðu tvíhliða samskipti sem við höfum átt við Bretland“, sagði Guðlaugur Þór.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir einnig stöðuna varðandi fyrirhugaða útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og málefni norðurslóða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að