fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fréttir

Íslenskur piltur fannst látinn í Suður-Afríku

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 20. febrúar 2017 07:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur piltur fannst látinn á vinsælu útivistarsvæði í nágrenni Höfðaborgar í Suður-Afríku í gær.

Greint er frá málinu á forsíðu Fréttablaðsins í dag og vísað í fréttir suðurafrískra fjölmiðla.

Þar segir að pilturinn hafi verið nítján ára. Hann mun hafa fundist á Table-fjalli, einu af kennileitum Höfðaborgar og vinsælu útivstarsvæði, eftir að hafa verið saknað frá því í hádeginu á laugardag.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að dauðsföll af slysförum séu ekki óalgeng á fjallinu. Þá kemur fram í fréttinni að sérstöku eftirliti hafi verið komið á á fjallinu vegna ítrekaðra ránstilrauna.

Ekki hefur verið greint frá dánarorsök en mikill vindur var á svæðinu um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar
Fréttir
Í gær

Biggi Sævars kærir konu til lögreglu fyrir rangar sakargiftir og meiðyrði

Biggi Sævars kærir konu til lögreglu fyrir rangar sakargiftir og meiðyrði
Fréttir
Í gær

Segja að Rússar hyggist neyða íbúa á herteknu svæðunum til herþjónustu

Segja að Rússar hyggist neyða íbúa á herteknu svæðunum til herþjónustu
Fréttir
Í gær

Klæddist eins og ruslapoki til að stela tveimur hleðslutækjum – „Ég hélt að einhver væri að grínast í mér“

Klæddist eins og ruslapoki til að stela tveimur hleðslutækjum – „Ég hélt að einhver væri að grínast í mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tíðindi hjá Sverri Einari: B5 hættir starfsemi en Exit heldur áfram

Tíðindi hjá Sverri Einari: B5 hættir starfsemi en Exit heldur áfram