Sigríður Áshildur Andersen dómsmálaráðherra hefur átt erfiða viku. Í gær féll dómur Mannréttindadómstóls Evrópu þess efnis að skipan hennar á einum dómara í Landsrétt hefði verið ólögleg. Á mánudaginn lést móðir Sigríðar, Brynhildur Kristinsdóttir Andersen, á Landspítalanum, 80 ára að aldri. Af þeim sökum treysti Sigríður Andersen sér ekki til að mæta í Kastljósið í gær til að ræða um skipan dómara í Landsrétt og niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu.
Brynhildur fæddist og var uppalin í Reykjavík, Hún lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands, stundaði nám í píanóleik og lauk námi frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Brynhildur starfaði í aldarfjórðung á skrifstofu Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Brynhildur var virkur félagi í Sjálfstæðisflokknum. Hún var um langt árabil formaður Félags sjálfstæðismanna í vestur- og miðbæ, þar sem hún var síðar kjörin heiðursfélagi. Brynhildur var virkur þátttakandi í starfi Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og í starfi Landssambands sjálfstæðiskvenna þar sem hún sat í stjórn og gegndi starfi framkvæmdastjóra um skeið.
Eftirlifandi eiginmaður Brynhildar og faðir Sigríðar er Geir R. Andersen en þau giftust árið 1958. Geir er fyrrverandi blaðamaður en hann starfaði á DV sem blaðamaður á árunum 1987 til 2003. Skrifaði Geir fjölda greina um þjóðmál. Geir var einnig framkvæmdastjóri þjónustusviðs Loftleiða (síðar Flugleiða).
Þau Brynhildur og Geir eignuðust þrjú börn, Kristin Andersen, Ívar Andersen og Sigríði Á. Andersen. Barnabörn þeirra eru sex talsins.
Margir hafa sent Sigríði samúðarkveðju vegna fráfalls móður hennar. Í þeim hópi eru Frosti Sigurjónsson fyrrverandi þingmaður, Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ragnhildur Pála og Sjöfn Þórðardóttir. Sjöfn segir:
„Mínar innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyldunnar elskuleg vegna fráfalls móður þinnar. Móðir þín var einstök kona og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst henni, minning hennar mun lifa.“
Meðal annars skrifar Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, á Facebook-síðu ráðherrans, en Vigdís missti sjálf móður sína fyrir skömmu:
Kæra Sigríður
Innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyldunnar vegna fráfalls móður þinnar. Það þarf mikinn styrk til að takast á við sorgina sem fylgir því að missa móður sína. Ég vona að þið fáið frið til að syrgja og að fólk beri virðingu fyrir þeim tímamótum sem þú og fjölskyldan stendur á núna. Kærleikskveðjur – Vigdís