fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
Fréttir

Henti grjóti í gegnum svalahurð í Hafnarfirði: Gestur í íbúðinni fékk grjótið í sig

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 10. mars 2019 12:11

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í morgun sem grunaður er um eignaspjöll og líkamsárás í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu er maðurinn grunaður um að kasta grjóti í svalahurð íbúðar á jarðhæð með þeim afleiðingum að rúðan brotnaði. Ekki nóg með það heldur fór grjótið í gest sem var í íbúðinni.

Að því er fram kemur í skeyti lögreglu var meintur gerandi handtekinn og vistaður í fangageymslu. Ekki er vitað um meiðsl að svo stöddu.

Um hálf sex í morgun var tilkynnt um líkamsárás við Ingólfstorg í miðborg Reykjavíkur. Þar hafði maður verið kýldur og var hann með áverka á höfði og skerta meðvitund. Árásarþolinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild, en árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Þá stöðvaði lögregla nokkra vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Lögregla segir einnig að klukkan fimm í morgun hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu í Garðabæ vegna farþega sem neitaði að greiða leigubílstjóra fyrir akstur. Bílstjórinn fékk greitt þegar lögregla mætti á svæðið.

Loks hafði lögregla afskipti af ökumanni bifreiðar í efra Breiðholti rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Bifreiðinni hafði verið ekið yfir gatnamót gegn rauðu ljósi.  Að sögn lögreglu sinnti ökumaðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók að íbúðarblokk þar sem hann lagði í bifreiðastæði og færði sig í aftursæti.  Þegar hann var beðinn að stíga út úr bifreiðinni neitaði hann því.  Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð og er hann einnig grunaður um ölvun við akstur.  Maðurinn var laus að lokinni töku upplýsinga og blóðsýna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Í gær

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Múslimum bannað að halda trúarhátíðir á opinberum stöðum

Múslimum bannað að halda trúarhátíðir á opinberum stöðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi