fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Fréttir

Ford Bronco kemur aftur

Bílaáhugamenn sáttir

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 15. janúar 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílaframleiðandinn Ford boðaði í vikunni endurkomu Ford Bronco á bílamarkað en til stendur að hefja framleiðslu og sölu á bílunum árið 2020. Bílaáhugamenn hafa margir fagnað þessum tíðindum enda nutu bifreiðirnar mikilla vinsælda þegar þær voru framleiddar á árunum 1966 til 1996.

Þetta eru ekki einu tíðindin því Ford tilkynnti einnig að fyrirtækið hyggist hefja aftur framleiðslu á Ford Ranger fyrir Bandaríkjamarkað. Þá má geta þess að Fiat Chrysler tilkynnti í vikunni að fyrirtækið ætlaði að hefja aftur framleiðslu á Jeep Wagoneer og Grand Wagoneer sem síðast var framleiddur árið 1991.

Í umfjöllun USA Today í vikunni var gefið í skyn að bílaframleiðendur hugsi sér gott til glóðarinnar vegna kjörs Donalds Trump til forseta. Hann muni auka olíuframleiðslu og slaka á reglum um útblástur bifreiða sem kæmi bandarískum bílaframleiðendum vel. Sergio Marchionne, stjórnarformaður Fiat Chrysler, sagði þó við blaðið að bílaframleiðendur þyrftu fyrst að bíða og sjá hver raunveruleg stefna Trumps væri í þeim efnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Elín Hirst óttast um velferð föður síns

Elín Hirst óttast um velferð föður síns