Annar ökumaður var handtekinn í miðborginni grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og hlaut mál hans hefðbundna afgreiðslu.
Einn ökumaður var handtekinn í Breiðholti grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu klippti skráningarnúmer af 10 bifreiðum í nótt en þær höfðu ýmist ekki verið færðar til skoðunar á réttum tíma eða voru ótryggðar.