Staðan verður metin aftur um klukkan 11
Búið er að aflýsa öllu flugi frá Reykjavík vegna veðurs. Staðan verður tekin aftur klukkan 11:15 en þá verður búið að taka ákvörðun um hvort hægt verði að fljúga eftir hádegi.
Ekkert verður þó flogið til Ísafjarðar það sem af er degi.
Flug Norlandair frá Akureyri til Vopnafjarðar skömmu fyrir klukkan níu og áfram til Þórshafnar á tíunda tímanum er á áætlun.