Friðarviðræður Bandaríkjanna og Talibana ganga nú yfir í Doha, höfuðborg Katar. Áætlað var að viðræðurnar myndu eingöngu standa yfir í tvo daga, en þær hafa nú staðið yfir í um fjóra daga. Samkvæmt bandarískum embættismönnum ganga viðræðurnar vel. Helsta umræðuefnið er tímarammi á brottför allra bandarískra hermanna frá Afganistan, ásamt því að fá Talibana til að samþykkja að ógna ekki öryggi Bandaríkjanna né styðja við hryðjuverkasamtök sem hafa í hyggju að ráðast á Bandaríkin.
Um 14 þúsund bandarískir hermenn eru í Afganistan í dag og hefur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagt að hann vilji minnka þá tölu um að minnsta kosti helming, eða niður í 7 þúsund hermenn. Afgönsk stjórnvöld hafa áhyggjur af brottför Bandaríkjamanna frá landinu og telja margir háttsettir embættismenn þar í landi að yfirvöld séu alls ekki tilbúin fyrir það að Bandaríkjamenn yfirgefi landið þar sem afganski herinn sé einn sá spilltasti í heiminum og illa þjálfaður. Stríðið í Afganistan hefur staðið í yfir 17 ár og hafa átökin kostað yfir 35 þúsund manns lífið.