fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
FókusKynning

Huggulegur áningarstaður í jólaösinni

Kynning

Kjúklingastaðurinn Suðurveri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 8. desember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og allir vita eru máltíðir og hvíld nauðsynlegur partur af jólainnkaupaferðum. En þessar hvíldarstundir eru ekki bara nauðsynlegar heldur eiga þær líka að vera í senn skemmtilegar og endurnærandi. Kjúklingastaðurinn Suðurveri er fullkominn áfangastaður í jólaösinni, þar er notalegt fyrir fjölskyldur og aðra að eiga góða stund og njóta ljúffengs matar í huggulegu umhverfi, á góðu verði.

Skorpan á kjúklingabitunum á Kjúklingastaðnum Suðurveri er afar rómuð og þykir einstaklega ljúffeng og fersk, viðkoman er ekki blaut eins og víða tíðkast á kjúklingaréttastöðum heldur mátulega safarík. Jón Eyjólfsson, eigandi staðarins, segir að margir hafi falast eftir uppskriftinni að kryddleginum sem myndar skorpuna en sú uppskrift muni ávallt verða leyndarmál.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Líkt og gildir um kryddblönduna á kjúklinginn eru sósur og salöt búin til frá grunni á staðnum og þetta meðlæti er alltaf ferskt og nýtt. Hrásalatið er hið upprunalega Stjörnusalat sem á sér áratuga sögu en brún kjúklingasósan er einstaklega ljúffeng, það fékk blaðamaður DV að reyna, sem heimsótti staðinn og bragðaði kjúklingabita, hrásalat, kjúklingasósu og kokteilsósu – en allt reyndist þetta afar bragðgott, ljúffengt og ferskt.

Ekki síst eru frönsku kartöflurnar góðar en þar velur Jón alltaf hráefni úr hæsta gæðaflokki. Fjölmargir koma við á helgarrúntinum og kaupa stóran skammt af frönskum – og ekkert annað.

Kjúklingastaðurinn Suðurveri stendur á gömlum grunni frá árinu 1967 og verður því hálfrar aldar gamall á næsta ári. Staðurinn hefur notið stöðugra vinsælda í gegnum tíðina og margir viðskiptavinir staðarins í dag hafa verið það frá upphafi. Núverandi eigandi, Jón Eyjólfsson, tók við rekstrinum fyrir tíu árum og segir hann að viðskiptavinaflóran sé þverskurður af samfélaginu og margar kynslóðir sækja staðinn. Til dæmis er hann vinsæll meðal nemenda í skólunum í nágrenninu, Versló, MH og Hlíðaskóla; fyrrverandi nemendur skólans, allt aftur til upphafsára staðarins, eru einnig reglulegir gestir, en margir þeirra eru þekktir einstaklingar í samfélaginu í dag.

Síðast en ekki síst er Kjúklingastaðurinn Suðurveri afar vinsæll hjá fjölskyldufólki. Margir kjósa að njóta veitinganna í huggulegu umhverfi á staðnum en þeir sem vilja frekar borða heima taka matinn með sér. Afgreiðsla er þykir með afbrigðum hröð enda hefur verið þróað skipulag á staðnum sem tryggir hraða og góða þjónustu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7