fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Eingöngu vörumerki Íslandsbanka á Norðurturni

Eigendur úrskurðuðu í málinu – LS Retail íhugar málsókn

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 8. nóvember 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandsbanki mun einn leigutaka í Norðurturni við Smáralind fá heimild frá eigendum til þess að auglýsa vörumerki sitt á toppi byggingarinnar. Þetta liggur fyrir eftir ákvörðun stjórnar Nýs Norðurturns hf. Mikil óánægja er meðal annarra leigutaka í húsinu og íhuga forsvarsmenn LS Retail nú að leita réttar síns fyrir dómstólum. Þá var endanlega ákveðið að byggingin skildi kallast Norðurturninn í opinberu tali. Áður hafði Íslandsbanki stungið upp á því að heiti byggingarinnar yrði „Íslandsbankaturninn“ en sú tillaga hlaut ekki hljómgrunn.

Ákveðið að flytja höfuðstöðvarnar

DV hafði greint frá því í október að átök geisuðu meðal leigutaka Norðurturnsins um sýnileika fyrirtækjanna utan á húsinu. Segja má að allt hafi breyst þegar Íslandsbanki ákvað um miðjan apríl síðastliðinn að flytja höfuðstöðvar sínar í bygginguna. Áður var eingöngu stórt útibú á teikniborðinu hjá bankanum í Norðurturni.

Þegar höfuðstöðvarnar voru allt í einu undir þá sá bankinn fram á að vörumerkið þyrfti að vera afar áberandi og hefur síðan sótt það fast.

Íslandsbanki beggja vegna borðsins

Norðurturninn er fimmtán hæða glæsihýsi í eigu Nýs Norðurturns hf. Íslandsbanki er einn af eigendum félagsins, með 22,85% hlut, og situr því beggja vegna borðsins í deilunum. Aðrir hluthafar eru Glitnir, Tryggingamiðstöðin, Lífsverk lífeyrissjóður, Bilskirnir ehf., Grænistekkur ehf. og Hjúpur ehf. (dótturfélag Byggingafélags Gylfa og Gunnars). Byggingin er samtengd Smáralind og því gerði móðurfélag Smáralindar, Reginn, samning um leigu á tveimur neðstu hæðum hússins þaðan sem innangengt er í verslunarmiðstöðina. Í lok febrúar var tilkynnt með pomp og prakt að hugbúnaðarfyrirtækin LS Retail og Annata hefðu skrifað undir leigusamninga um rými í byggingunni. LS Retail festi sér 11–15. hæð hússins og Annata leigði 10. hæð turnsins. Um miðjan apríl tilkynnti Íslandsbanki að ákveðið hefði verið að flytja höfuðstöðvar bankans í Norðurturn og myndi bankinn verða starfræktur á 3–9. hæð húsnæðisins.

4.000 viðskiptavinir

Tveimur mánuðum áður hafði hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail skrifað undir samning um að leigja þriðjung Norðurturnsins, fyrst allra fyrirtækja. Fyrirtækið þróar og markaðssetur hugbúnað úti um allan heim og því er mikilvægt að lógó fyrirtækisins og ímynd sé sterk og áberandi. „Við erum með 4.000 viðskiptavini í 120 löndum. Samstarfsaðilar okkar koma ávallt með núverandi og tilvonandi viðskiptavini í heimsókn til Íslands til þess að kynnast fyrirtækinu og öðlast traust á okkur sem alþjóðlegum framleiðanda á hugbúnaði,“ sagði Magnús Norðdahl, forstjóri félagsins, í samtali við DV á sínum tíma.

LS Retail íhugar að leita réttar síns vegna ákvörðunar eiganda byggingarinnar.
Inngangur Norðurturns LS Retail íhugar að leita réttar síns vegna ákvörðunar eiganda byggingarinnar.

Troðið um tær?

Í kynningarefni um merkingar utan á húsinu, sem auglýsingastofan Brandenburg vann, kemur fram að „merkingar skulu uppfylla þarfir hvers og eins leigutaka að eins miklu leyti og hægt er, án þess að gengið sé á rétt annarra leigutaka.“ Ljóst er að forsvarsmenn Íslandsbanka eru himinlifandi með niðurstöðuna, sem uppfyllir allt sem þeir lögðu upp með. Aðrir leigutakar telja hins vegar að þeim hafi verið troðið um tær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“
Fréttir
Í gær

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“