fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Urtasmiðjan: Náttúrulegar heilsuvörur úr íslenskum jurtum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 30. nóvember 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við Eyjafjörðinn má finna margs konar blómlega atvinnustarfsemi, en þar er eitt fyrirtæki sem er alveg sér í lagi blómlegt og hefur síðustu 24 árin framleitt hágæða snyrtivörur, húðvörur og líkamsvörur úr íslenskum jurtum og lífrænt vottuðum hráefnum. Urtasmiðjan á Svalbarðsströnd er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem eigandinn og fyrrverandi tónlistarkennarinn, Gígja Kjartansdóttir Kvam, stofnaði og hefur stýrt frá upphafi við góðan orðstír.

Fyrsta framleiðsluvara Urtasmiðjunnar leit dagsins ljós fyrir 24 árum, en það var Græðismyrslið. Gefum Gígju orðið:
„Mér varð oft hugsað til ömmu minnar sem tíndi jurtir sem hún blandaði í sinn eigin áburð sem hún notaði á bæði menn og skepnur. Í þá daga var ekki óalgengt að fólk notaði jurtir sér og sínum til heilsubótar bæði í drykki og smyrsli, því vitneskjan um áhrifamátt jurtanna var víða til staðar og ekki alltaf hægt að hlaupa til læknis svo fólk varð oft að bjarga sér sjálft. Græðismyrslið mitt hefur frá því fyrsta verið afar eftirsótt og alla tíð síðan sannað gildi sitt sem alhliða græðandi áburður. Það flýtir fyrir að græða s.s. legusár, sólbruna, sólarexem, ýmis útbrot og gyllinæð, en ekki síst er það mjög áhrifaríkur brunaáburður. Græðismyrslið inniheldur m.a. vallhumal og rauðsmára sem eru þekktar jurtir fyrir græðandi virkni. Morgunfrú er viðurkennd heilandi húðjurt og kamillan róandi á sviða og kláða og dregur úr bólgu, lofnarblóm og hafþyrnir eru ekki síst þekktar jurtir fyrir m.a. græðandi áhrif á brunasár. Græðismyrslið er notað á ýmsum heilsustofnunum og dvalarheimilum og fær alltaf mikið lof fyrir sína góðu og alhliða virkni.

Ásamt Græðismyrslinu var Vöðva- og gigtarolían ein af fyrstu tegundunum sem við fórum að framleiða og má segja að hugmyndin að henni hafi verið mín eigin þörf fyrir að milda verki í liðum og mýkja harða og spennta vöðva. Í henni er blóðberg, einir, arnika og fleiri áhrifaríkar jurtir, sem þekktar eru fyrir mildandi áhrif sín á gigtarverki, eymsli og stirðleika í liðum, vöðvaspennu og sinadrátt. Olían smýgur vel inn í húð og vöðva og fer ekki í föt. Hún er notuð víða á nuddstofum hér á landi og erlendis og fær frábær ummæli frá nuddurum og nuddþegum.“

Auk þessara framangreindu tegunda framleiðir Urtasmiðjan fjölmargar aðrar tegundir, s.s. andlitskrem úr íslenskum fjallagrösum, djúpnærandi silkiandlitsolíu (serum), handkrem, mýkjandi fótasalva (hælakrem) og fleira.

Mynd: Gígja Kjaran Kvam

Framleiðsla Urtasmiðjunnar inniheldur engin aukaefni, engin erfðabreytt efni eða dýraafurðir. Auk okkar hreinu og heilnæmu jurta er allt hráefnið upprunnið úr náttúrunni, lífrænt vottað, viðurkennt og leyft í lífrænni framleiðslu.

Allar frekari upplýsingar um húðvörur Urtasmiðjunnar og sölustaði má finna á vefsíðunni www.urtasmiðjan.is. og Facebook-síðunni www.facebook.com/Urtasmidjan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum